Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Calliope
Calliope Notandi frá fornöld 41 ára kvenmaður
602 stig

Bah! (3 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Vesenis notandi þessi dghghgh eða hvað hann nú heitir. OK, það má auðvitað koma meira efni hér inn, en óþarfi að spamma allt svæðið!

Hjálpið okkur að bæta íslensku Wikipediu (10 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Wikipedia er frjáls alfræðiorðabók sem hægt er að finna á þessari slóð: http://is.wikipedia.org Markmiðið er að byggja upp stóran gagnagrunn um alla heimsins þekkingu. Allir notendur, skráðir og óskráðir, mega bæta greinarnar sem þar finnast og búa til nýjar. Samt er mælt með að fólk skrái sig inn. Endilega skoðið þetta og leggið ykkar að mörkum :)

Hjálpið okkur að bæta íslensku Wikipediu, frjálsu alfræðiorðabókina (1 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Síðan er á þessari slóð: http://is.wikipedia.org Markmiðið er að byggja upp stóran gagnagrunn um alla heimsins þekkingu. Allir notendur, skráðir og óskráðir, mega bæta greinarnar sem þar finnast og búa til nýjar. Samt er mælt með að fólk skrái sig inn. Endilega skoðið þetta og leggið ykkar að mörkum :)

Er það afrek í lífinu að vera fallegastur? (28 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
í framhaldinu af öllum þessum korkum um Miss World, þá langaði mig að velta upp þessari spurningu. Hvað með alvöru afrek, eins og að gera mikilvæga uppgötvun í vísindum? Af hverju finnst mér minna bera á fjölmiðlafári kringum það þegar konur standa sig vel á slíkum sviðum? Er þetta ekki dálítið furðulegt gildismat? Bara að pæla…

Hvað heitir basilisk á íslensku? (7 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Basilíska slangan? Basilíuslangan? Basilískan? Og er þetta með stórum eða litlum staf í íslensku þýðingunni?

Regulus Black: Nýjar upplýsingar e.t.v. komnar fram? (6 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég rakst á þetta fyrir tilviljun á síðunni http://monsters.monstrous.com/basilisk.htm The antique Romans called [the basilisk] “regulus” or little king. Þetta þýðir sem sagt að Regulus sé annað nafn basilísku slöngunnar. Mér finnst þetta áhugavert og gæti þýtt eitthvað af eftirfarandi: 1. Regulus er einhvern veginn tengdur basilísku slöngunni. 2. Regulus var parcelmouth (gat talað slöngumál). 3. Regulus heitir slöngunafni einungis vegna þess að hann er í Slytherin. 4. Regulus er enn lifandi...

Könnunin: Gild rökfærsla? (9 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þetta hlýtur að vera ógild rökfærsla því hún er á forminu: Ef A þá B B -> A Þetta gæti allt eins verið Alltaf þegar rignir koma ánamaðkar upp á yfirborðið Það er ánamaðkur uppi á yfirborðinu -> Það rignir (ekki alltaf rétt)

Þetta er launamunur kynjanna, svart á hvítu (eða bleiku) (58 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Bara svo það sé á hreinu: Konur eru með 64% af tekjum karla (án tillits til vinnustunda, tegund starfs o.s.frv.). Karlar hafa 14% hærri laun þegar búið er að taka tillit til vinnutíma, aldurs, starfsaldurs, stéttar og menntunar. Sjá nánar á Vísindavefnum: http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=5350 Þessi munur er til staðar, og hann er ekki hægt að skýra út frá neinu NEMA kynferði. Og því erum við að mótmæla. Hluti ástæðunnar liggur hjá vinnuveitendum sem leynt eða ljóst meta ekki konur til...

Flott magnus119, fuckface og tryptophan :-) (2 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þetta fólk á sérstakt hrós skilið fyrir að senda greinar inn á áhugamálið til að lífga upp á það.

Allir vilja meiri virkni á áhugamálinu svo farið að skrifa greinar! (9 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Letipúkarnir ykkar :) Minni líka á að senda inn ýmislegt annað efni, svo sem korka, tilvitnanir, myndir o.fl.

Sýnið nú smá lit og svarið greinum sem berast áhugamálinu (3 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Það virkar hvetjandi fyrir höfunda, og það vantar fleiri greinar. Nú ættu allir sem lesa þetta að setjast niður í 20 mínútur - hálftíma og skrifa litla grein.

Antony and the Johnsons (2 álit)

í Músík almennt fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hvar og hvenær er hægt að fá miða á aukatónleikana?

Ókeypis bók um meðvitund (4 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Á Wikibooks: http://en.wikibooks.org/wiki/Consciousness_studies Hver sem er má svo breyta henni (en ég mæli ekki með því að fólk geri það nema það viti um hvað það er að tala…)

Arg! Firefox setur spurningamerki í stað íslenskra bókstafa (12 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hvað er þá að og hvernig get ég lagað það?

Vísindavaka á föstudaginn (2 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég leyfi mér að birta þennan texta af visindi2005.is: Dags: 23.9.2005 Staðsetning: Listasafn Reykjavíkur Viðburður: Vísindavaka 23. september 2005 Lýsing: Vísindavaka 23. september 2005 Visindavaka mettir hug og maga Mættu í Listasafn Reykjavíkur á föstudaginn kl. 17:30 - 21:00 Evrópusambandið hefur tileinkað föstudaginn 23. september vísindamönnum í Evrópu. Afþví tilefni verður efnt fjölmargra atburða í háskólum, rannsóknastofnunum og söfnum víðs vegar í Evrópu og er markmiðið með þessum...

Pómóorðabókin (3 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Svona af því að talið barst að Alan Sokal og póstmódernistum langaði mig að sýna ykkur eina snilldarsíðu, Fashionable Dictionary: http://www.butterfliesandwheels.com/dictionary.php Í henni stendur meðal annars: Close Encounters of the Third Kind 1977 documentary about intergalactic tourism, narrated by Richard Dreyfuss. [Bwahahahahah] Empiricism Absurd notion that observation and measurement are useful in getting to know about things (see positivism). Human Gnome Project Most likely...

Skynjunarsálfræði og taugavísindi (2 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hvort tveggja í uppáhaldi hjá mér. Á KurzweilAI.net er t.d. ágætlega áhugaverð grein eftir sálfræðinginn Kosslyn um það hvernig það að sjá eitthvað fyrir sér virkjar bæði sömu heilastöðvar og að skynja það í raun og veru, og hvernig það getur haft raunveruleg áhrif á líkamann (án þess að ég fari nú að aðhyllast einhverja tvíhyggju um líkama og sál). Sjá hér: http://www.kurzweilai.net/meme/frame.html?main=/articles/art0509.html

Dauði Sókratesar fótósjoppaður (2 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég fann þessa snilldar síðu á vafri mínu um netið. Hló upphátt :) http://forums.fark.com/cgi/fark/comments.pl?IDLink=1177094

Könnunin (8 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mér finnst dálítið erfitt að svara könnuninni þar sem ég hef bara lesið efni eftir Searle, Fodor, Dennett og Dretske. Og hverjir eru aftur Jaegwon Kim, Thomas Nagel og Colin McGinn?

Getiði gefið nýjum menntaskólakennara ráð? (28 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Hæhæ. Var að byrja að kenna í menntaskóla, svo eruð þið með einhver tips eða trix? Hvað fer til dæmis í taugarnar á ykkur hjá menntaskólakennurum? Hvað viljiði sjá í fari þeirra? Hvernig á að kenna og hvernig ekki?

Finna fóstur ekki til? (5 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ný og umdeild rannsókn gefur til kynna að sársaukaskyn fósturs sé ekki fullþróað fyrr en á 30. viku meðgöngu. Mig minnir að fóstureyðing sé ekki leyfð hér á Íslandi eftir 12 vikna meðgöngu. Sjá hér: http://www.newscientist.com/article.ns?id=dn7900

Er einhver hér fróður í sögu Rússlands eða Hvíta-Rússlands? (7 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ef svo er langar mig að biðja ykkur um að lesa þessa grein yfir og athuga hvort það séu einhverjar staðreyndavillur í henni: http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=5216 Ég var nefnilega að hjálpa grunnskólanemanda við að skrifa hana en textarnir sem ég studdist við voru afar tyrfnir. Ef þið finnið eitthvað sem er að skulið þið bara svara þessum pósti. Takk, takk, Calliope

Muhahaha - Spoilerbolir um Harry Potter 6 (19 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Á T-shirt hell (http://www.tshirthell.com/hell.shtml) er hægt að fá boli með áletruninni: Dumbledore dies on page 596 (I just saved you 4 hours and $30). Mér finnst þetta frekar fyndið þótt ég myndi reyndar ekki vilja mæta neinum í svona bol nema ég hafi lesið bókina.

Hvað hefði gerst ef... (11 álit)

í Vísindi fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Skemmtilegar pælingar á New Scientist um hvað hefði gerst ef Darwin hefði ekki siglt með M.S. Beagle, ef Einstein hefði ekki spýtt út greinum eins og brjálaður maður o.s.frv. :) Sjá hér: http://www.newscientist.com/channel/opinion/mg18725131.500

Spjallborð háskólanema/fyrrum háskólanema? (3 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Er til eitthvað svoleiðis? Jafnvel íslenskt? Veit reyndar um eitt erlent: http://www.phdcomics.com/proceedings/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok