Gömul kona að nafni Margie Knake, 72 ára, hafði skráð sig inn á spítala í Nashville, Tennessee, fyrir hjartaaðgerð en þegar hjúkrunarkona kom til að gera að henni sá hún að sjúklingurinn var horfinn. Eftir mikla leit í spítalabyggingunni og ekkert hafði spurst til Margie, fann árvökull starfsmaður miða frá henni sem á stóð, “skaust til að kjósa, kem aftur eftir hálftíma”. Konan hafði gleymt að kjósa áður en hún skráði sig inn á spítalann og skaust því til að tryggja forsetaefni sitt....