Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Adelene
Adelene Notandi síðan fyrir 19 árum, 9 mánuðum Kvenmaður
112 stig
Non fui, fui, non sum, non curo.

Gjaldmiðill (7 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hver er gjaldmiðillinn á Nýja Sjálandi?

WWII kvikmyndir? (34 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Hey vill fólk nefna mér góðar seinni heimstyrjaldar kvikmyndir? :) Fyrir utan Saving Private Ryan. Man ekki nöfnin á þeim sem ég hef séð og mig langar líka að sjá fleiri. Svo endilega nefnið mér góðar sem þið hafið séð.

10 fáránlegustu Black metal myndir ársins (23 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Fann þennan link á einu spjallborði sem ég er á. Ég er ekki Black metal fan en eftir að hafa verið hér á /metal þá kannaðist ég við flest allar hljómsveitirnar þarna og hló að nokkrum myndunum. Þetta er listi sem e-r gaur gerir um 10 black metal myndir sem honum finnst alveg hreint fáránlegar og hann setur comment undir hverja mynd. Þetta er listinn í ár: http://ruthlessreviews.com/top10/10blackmetal2.html Svo er líka listinn frá í fyrra: http://www.ruthlessreviews.com/top10/10blackmetal.html Enjoy

Afterlife (0 álit)

í Spenna / Drama fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Þetta á kannski ekki heima hérna, ég veit það ekki. En er e-r hérna sem horfir á það? Þessir þættir voru á stöð 2 og eru um konu sem er miðill. Um daginn átti að hafa verið síðasti þátturinn og mér fannst hann enda heldur skringilega og var að vona að e-r hérna horfði á þessa þætti og gæti kannski sagt mér hvort það sé önnur sería ef þetta var síðasti þátturinn?

Skilaboð sem hvarf (35 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Hey ég kíkti á Huga í morgun og þá sá ég að það var komið 1 nýtt skilaboð en ég var að gera e-ð annað svo ég gleymdi því í smástund. Svo ætlaði ég að fara aftur að kíkja á það en þá var hugi í smá viðgerð svo ég skrapp frá og kem aftur 1 og hálfum tíma seinna og skilaboðið er horfið. :/ Og mig langaði að vita hvort þetta var skilaboð um að myndin mín hafi verið samþykkt á einu áhugamálinu en ég kemst víst aldrei að því. AF hverju hvarf það er það sem ég vil vita?

MSN (Ekki log-in vesen) (15 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Getur e-r hérna sagt mér hvað ég get gert til að tölvan mín hætti að blokka hvert einasta lag og myndband sem ég fæ sent? Eftir að ég fékk þarna 7.0 eða nýrri útgáfu þá hefur tölvan blokkað allt og ég hef ekki hugmynd hvernig á að taka það af. Þarf að losna við þetta á næstu dögum.

Trommarar að syngja bakraddir (38 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Þessi þráður á kannski ekkert heima hér en mér fannst hann passa best hérna. Allavega, þá var ég að horfa á Queen: Live at Wembley í gær og tók eftir því að trommarinn, Roger Taylor, söng bakraddir ásamt Brian og ég fór að hugsa. Er ekkert erfitt að syngja bakraddir þegar maður er á trommum? Fer það kannski eftir hvaða tónlist maður spilar hvort það er hægt eða ekki? Og vitiði um fleiri trommara sem gera þetta? Og ég ætla að taka það fram að ég er bassaleikari. :)

Closseum og skylmingaþrælar (8 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Jáh þannig er mál með vexti að ég á að fara að flytja framsögur í sögutíma á mánudaginn um Colosseum og skylmingaþrælana. Ég leitaði mér heimilda á bókasafninu í skólanum og bæjarfélaginu og í alvöru talað voru bara tvær bækur sem fjölluðu e-ð örlítið um þetta og ég hef litlar sem engar heimildir. Svo ég var að hugsa hvort e-r vissi um áreiðanlega síðu á netinu sem fjallar um þetta? (þegar þetta er skrifað þá er ég ekki búin að prófa google, heldur vildi sjá hvort fólk vissi um e-r síður fyrir fram)

Lög til að spila eftir, í léttari kantinum (18 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég var að byrja að æfa á bassa fyrir um mánuði síðan og fékk það ráð að spila eftir lögum til að æfa tóneyrað. Eru e-r létt lög sem þið mælið með ég reyni að spila eftir?

Draumur (5 álit)

í Dulspeki fyrir 18 árum, 9 mánuðum
sko málið er það að ég á mér uppáhaldshljómsveit, í hljómsveitinni eru fjórir meðlimir og einn þeirra í LANGmestu uppáhaldi og bara gjörsamlega DÝRKA ég þennan meðlim.. alltaf þegar mig dreymir að ég sé annað hvort á tónleikum með þeim, hitta þá, tala við þá eða e-ð þannig, þá tala ég við alla meðlimi hljómsveitarinnar nema þennan uppáhaldsmeðlim minn.. :/ eða ég kalla nafnið þeirra þegar þeir spila (dreymir oftast bara svona mjög lítil gigg) og þeir líta allir á mig nema þessi eini...

Svekkjandi (14 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Oh var að komast að því að aldurstakmarkið var tekið af Megadeth tónleikunum áðan :( Það er náttúrulega ekki slæmt fyrir þá sem eru fyrir sunnan núna eða eiga heima þar, skemmtið þið ykkur bara vel :) En ég mátti ekki fara suður útaf þessu aldurstakmarki og er því heima í bænum mínum sem er lengst útí r******i og hef engan séns á að komast á tónleikana í kvöld og það er svo svekkjandi að vita að ég ætti að vera þarna :( Arg! Bömmer! :(

hlutir sem breyttust? (18 álit)

í Sci-Fi fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Núna yfir helgina horfði ég á allar 3 gömlu myndirnar eftir að hafa séð ROTS í síðustu viku.. og ég tók eftir því að sums staðar sögðu þau hluti sem pössuðu ekki við nýrri myndirnar :/ t.d. segir Obi-Wan að Yoda hafi þjálfað hann en í fyrstu myndinni, The Phantom Menace, þá var það Qui-Gon sem þjálfaði hann.. svo líka þegar Luke spyr Leiu hvort hún muni eftir móður sinni og hún segir að hún hefði dáið þegar Leia var ung og Leia mundi bara svipmyndir og tilfinningar en í ROTS þá dó Padmé...

Bassi (18 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hérna, ég er búin að vera að reyna að finna hvað þessi Steve Harris sig. bassi kostar –> http://namm.harmony-central.com/SNAMM01/Content/Fender/PR/Harris-P-Bass-large.jpg en ég finn það hvergi :/ það er ekkert um þetta á Fender.com er búin að tékka þar.. ætli þeir eigi hann þá ekkert lengur? og fyrir þá sem kannski halda að ég sé að spurja um þetta af því að Iron Maiden eru nýbúnir að spila hér á landi: Ég er búin að vera að hlusta á Iron Maiden í all nokkurn tíma þótt það séu ekki alveg...

Skondið (12 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
var að skoða b2.is og fann e-ð dót þar sem mar getur séð síður eins og þær voru áður fyrr.. ég prufaði að gera hugi.is og þar sá ég hvernig hugi.is leit út árið 2000 sem var löngu áður en ég byrjaði á huga.. það er allavega hér: http://web.archive.org/web/20010124045300/www.hugi.is/forsida/ síðan eru önnur ár hérna líka og þið getið tékkað á öðrum síðum og svona.. http://web.archive.org/web/*/http://www.hugi.is mér fannst þetta ansi skondið allavega.. :)

Viðtal við Dave Mustaine (9 álit)

í Metall fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Fyrir þá sem vissu það ekki þá er viðtal við Dave Mustaine í Morgunblaðinu í dag. þriðjudag. :) Er reyndar ekki búin að lesa það sjálf ennþá. Tjah.. þetta var eiginlega það eina sem ég ætlaði að segja. hehe Láta ykkur vita.

QOTSA og FF miðar á midi.is? (8 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
er e-r hérna búinn að panta, eða sem getur pantað miða á netinu á QOTSA og FF? ég get það allavega ekki.. :/ skil þetta ekki.. það kemur alltaf bara hjá mér: miðasala byrjar kl. 11 á midi.is og klukkan er orðin korter yfir 11…

hjálp (3 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
er að skrifa glósur í Word og var að gera e-a töflu þar.. síðan var ég búin með hana og ætlaði að halda áfram að skrifa en þá komu bara endalaust af línum.. :| http://i5.photobucket.com/albums/y163/KHkiddow/untitled.jpg getið séð það hérna.. e-r sem getur sagt mér hvernig á að taka þetta af? :/

Nát 113 (19 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
er e-r hérna í Nát113? er að fara í lokapróf í því og nenni svo innilega ekki að læra fyrir það.. :/ veit að þetta ætti kannski að frekar að vera inná /skoli en mar fær kannski fleiri svör hérna..

QOTSA og Foo Fighters? (10 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 11 mánuðum
er einhver búinn að heyra e-ð meira um þessa tónleika? t.d. hvar og hvenar þeir verða og hvenar miðasalan byrjar, hvað miðarnir kosta og hvar þeir verða seldir? eða bara yfir höfuð: er alveg pottþétt búið að staðfesta þá? (geri mér grein fyrir að mar skrifar hvenær ég bara hef alltaf skrifað þetta svona af því ég segi það svona)

Misheyrðir textar (14 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 12 mánuðum
er e-r hérna sem veit um síðu þar sem ég get lesið svona texta sem fólk hefur sungið vitlaust? ég las þetta hérna um daginn: http://www.b2.is/?sida=tengill&id=100209 og mér finnst alveg snilld að lesa svona.. vill kannski svo til að e-r veit um fleiri svona síður?

blóðnasir? (12 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum
E-r sem veit af hverju maður fær blóðnasir uppúr þurru? Ég hef verið að fá þetta undanfari 1 og hálft ár næstum því. Það kemur alveg uppúr þurru sama hvað ég er að gera. Ég fór til læknis útaf þessu en hann vissi ekkert af hverju þetta væri. blóðþrýstingurinn var eðlilegur og blóðið, fór í blóðprufu, var líka eðlilegt. Ég er með blóðnasir akkurat núna meðan ég skrifa þetta og þær komu uppúr þurru. Fyrst hélt ég að þetta væri bara hor í nefinu þar sem ég er með kvef. Svo hóstaði ég og þá kom...

að byrja (26 álit)

í Rómantík fyrir 19 árum
hvað á maður eiginlega að segja við fólk sem manni langar að tala við en hefur aldrei talað við áður? :S það er nefnilega strákur í skólanum mínum sem mig langar til að tala við og ég er svona smá hrifin af honum, og vinkona mín reddaði mér nrinu hans óumbeðin og sagði mér að senda honum sms.. málið er að ég veit ekkert hvað ég ætti að segja í fyrsta smsinu…. því hann veit örugglega ekki einu sinni hver ég er.. ég þekki samt systur hans sem er jafngömul mér, eða svona tala við hana stundum.....

Vatnadraumar :| (10 álit)

í Dulspeki fyrir 19 árum
hmm sko… það er ósjaldan sem mig dreymir e-ð tengt vatni. Laaaaaangoftast er það tengt sundlaugum en ég taldi ástæðuna hafa verið að ég var að æfa sund. En samt eftir að ég hætti í sundinu þá dreymir mig ennþá sundlaugar eða að ég sé að gera e-ð í rigningu, er rétt hjá tjörn eða vatni, á eða læk. Ætli það þýði e-ð eða..? Hef ég bara svona óstjórnlega þörf fyrir vatn? heh

Byrjandi (36 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum
hey, hvernig bassa mynduð þið mæla með fyrir byrjendur? svona í ódýrari kantinum kannski.. er nefnilega að hugsa um að byrja að læra á bassa en veit samt ekkert hvernig á að velja.. :/

úff.. skrýtið.. (23 álit)

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hmmm.. sko mig langar bara að segja frá þessu. En allavega þá var ég hrifin af strák fyrir áramót og var búin að vera hrifin af honum í, tjah, þokkalega langan tíma allavega. Ég byrjaði að tala við hann stuttu eftir að ég varð hrifin af honum því ein af bestu vinkonum mínum þekkti hann smá. Og ég ætla að taka það fram að við töluðum alltaf saman á MSN. En ok, við töluðum svona ágætlega mikið saman fyrst en samt ekkert um of því ég vildi ekki að hann fattaði strax að ég væri hrifin af honum....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok