sko málið er það að ég á mér uppáhaldshljómsveit, í hljómsveitinni eru fjórir meðlimir og einn þeirra í LANGmestu uppáhaldi og bara gjörsamlega DÝRKA ég þennan meðlim..

alltaf þegar mig dreymir að ég sé annað hvort á tónleikum með þeim, hitta þá, tala við þá eða e-ð þannig, þá tala ég við alla meðlimi hljómsveitarinnar nema þennan uppáhaldsmeðlim minn.. :/ eða ég kalla nafnið þeirra þegar þeir spila (dreymir oftast bara svona mjög lítil gigg) og þeir líta allir á mig nema þessi eini meðlimur, hann lítur e-ð allt annað.. ef ég hitti hann svo þá segir hann ekki orð við mig..

haldiði að það geti þýtt að ég fái aldrei að tala við þennan meðlim uppáhaldshljómsveitarinnar minnar?
Non fui, fui, non sum, non curo.