Ég er í prógrammi sem kallast p90x, aðallega því ég rakst á myndband á Youtube með einhverjum amazing results úr þessu prógrammi. Mun ég þurfa próteindrykki/mysuprótein í það?
Já sá líka eitthvað myndband með þessu p90x,gæjinn átti á 90 dögum að fara frá því að vera ræfill yfir í eitthvern hrikalegann gæja sem að myndir ekki vilja dissa.
Ég allaveganna veit ekki um nein sem að hefur stækkað svona á 90 dögum svo að ég held að þetta séi bara eitthvað bull (með hversu mikið þeir stækka).
hreysti er bara er bara próteindrykkur sem er búið að blanda fyrir þig, ódýrara að kaupa sér próteindunk/poka og blanda sjálfur, annars er þetta fínt til að grípa í öðru hvoru
Þú ert að spyrja hvort ein tegund prótínfæðubótarvarnings geti komið í stað fyrir annan, sem þú getur vissulega gert. Orðalag spurningarinnar segir mér hins vegar að þú veist ekki alveg af hverju menn neyta fæðubótarefna eða innihaldi þeirra, sem ég mæli með að þú bætir úr.
Að ég best veit þá er þetta notað helst beint eftir æfingar því þá er klukkutími eða eitthvað sem líkaminn er tilbúinn til að taka við prótíni og þvíumlíku. Þetta er s.s. notað til að byggja upp vöðva >_
Ég borða samloku með osti, skinku, agúrkum, káli og með hunangssinepssósu í morgunmat, roastbeef samloku + kristal í hádeginu, ávöxt eftir skóla og sömu samloku + hámark eftir æfingar og svo einhvern random kvöldmat sem ég borða mikið af. Nægir þetta heldurðu?
fáðu þér hafragraut, egg eða skyr á morgnanna, kjöt, fisk,skyr, hrisgrjon eða pasta í hádeginu, eitthvað fyrir gymmið og kvöldmat.. þá kjöt ekki samloku..
svo eitthvað fyrir svefninn.. þá er mér sama um samlokuna þina ;)
var ekki markmiði hérna bara rétt fyrir ofan að missa fitu og fá betra úthald? og nú alltíeinu er það orðið að stækka. veist ekkert hvað þú vilt drengur.
Excuse my French, emotion in my passion But I wear my heart on my sleeve like it's the new fashion.
Þetta er dáldið loðið hjá mér ég veit, en goalið mitt er nokkurn veginn svona: skera af smá fitu + fá betra úthald í íþróttum og fá vöðva, en ég er ekki á leiðinni í bodybuilding.
Skiptu meginhlutanum af þessu út fyrir prótein og gáfulegri kolvetnasource eins og stákarnir eru að tala um og þá gætir þú farið að sjá árangur. Ég myndi mæla með ca 1,5 gr prótein/per kilo af líkamsþyngd -á dag.
Það er ekkert að röksemdafærslunni minni. Þú byrjar á því að spyrja mjög heimskulega(i.e. eru þrjár samlokur nóg til að stækka herpaderpderp?). Af því get ég dregið nokkrar ályktanir: a)Þú ert að trolla. b)Þú ert fáránlega fáfróður um mannslíkamann. c)Þú ert svona 25kg og gætir þess vegna átt von á því að stækka á þremur samlokum. Þú segist ekki vera að trolla og líkurnar á því að 16 ára drengur sé 25kg eru mjög litlar. Þar af leiðir b), sem einnig má orða sem, þú ert fífl.
Sínist að það sé mest allt komið í þennan þráð sem þú ert að spurja um. En bara til að setja þetta í smá samhengi fyrir þig þá kostar skamturinn af proteininu sem ég keipti mér 110kr. Var reyndar á tilboði. Það er sama magn af proteini og í hámarki sem kostar talsvert meira.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..