Sælir,

var að velta því fyrir mér með Hámark drykkinn. Þessi drykkur er algjör snilld og mjög þægilegt að grípa í. En er að velta því fyrir mér hvað það sé í lagi að drekka marga svona á dag þar sem þetta er mjólkurvara.

Veit allavega að þær staðreyndir að drekka/borða of miklar mjólkurvörur er ekki hollt, td eins og skyr.

Eins og ég sagði að þá er þetta ekkert smá þægilegt að grípa í og ég drekk yfirleitt svona 4-5 á dag, s.s á milli mála og með örðum kolvetnum.