stefnan er tekin á betri heilsu og kort var keypt í ræktinni og var að spá í hvort þið gætuð svarað eftirfarandi atriðum

hvort er betra að reyna að brenna sem mestu fyrst og bæta síðan á sig massa eða fara jafnt í þetta ?

hvar er brennslan mest, við hversu hraðan púls ?

getiði bent mér á góðar bakæfingar(er að drepast í bakinu)?

hvernig á að haga vatnsdrykkju á meðan æfingum stendur ?

á maður að teygja fyrir eða eftir æfingar ?

og hvernig fer það með líkaman að fara út í kalda sundlaug eftir æfingar svona teygjulega séð ?

hvort á maður að taka litlar þyngdir oft eða stórar þyngdir ekki eins oft ?

og svo eitt, hvað er verið að tala um þegar er verið að tala um sett

staðan núna er 125 kg miðað við 190 cm hæð, og í engu formi
stjórnandi frá fornöld kubbur#2950