Ég keypti mér 100% Whey Gold Standard frá NOW fyrir ekki svo löngu og er búinn með það, það var Chocolate bragð, það var ágætt fyrst en eftir svona 10 skammta var ég kominn með ógeð, og þurfti bókstaflega að pína þetta oní mig. Samt leist mér alveg vel á próteinið sjálft.

Svo ég spyr, fyrir þá sem hafa prufað þetta prótein, hvaða bragð fannst ykkur best?

Eða mælið þið með einhverju öðru?