Þannig er mál með vexti að kortið sem ég keypti í Hress var að renna út. Þetta er frekar óþægilegt þar sem þá þarf ég að láta kvikindin fá meira af peningum til að fá að lyfta þarna áfram. Hvað ef ég læt einhverja aðra fá peninga samt og fæ að lyfta hjá þeim? Eru einhverjir sem þið fílið vel og haldið að eigið skilið að fá peningana mína?
Er s.s. að leita eftir nýrri stöð, helst frekar “hardcore”. Vil geta gert Rack Pulls, Ólympískar lyftur og aðra svoleiðis skemmtilega hluti þarna, svo aðstaðan verðnur að vera fín. Einhver með uppástungur? Sakar ekki ef það er ódýrt.
www.brotherhoodofiron.com