Nú veit ég sitt hvað um hvað ég á að láta ofan í mig og hvenær, en hádegisverðurinn hefur verið að vefjast fyrir mér. Ég veit alveg hvað ég á að borða en vandamálið er bara hvar ég á að nálgast það.

Mig langar helst að borða eitthvað á við kjúkling, fisk eða kjöt, samloka með 100% natural hnetusmjöri eða tuna er ekki að gera sig í hvert skipti. Er til eitthvað þannig sem maður getur útbúið quick um morguninn eða daginn áður, ekkert vandamál fyrir mig að borða kalt btw. Er þá að spyrja hvað er hentugast að kaupa, þarf ekkert að vera 5minute meal eða eitthvað þannig. Eða bara eitthvað sniðugt sem þið getið mælt með.

Er einnig með auka spurningu. Er eitthvað brauð á Íslandi merkt 100% whole wheat? Því ég hef ekki tekið eftir þessu 100% á brauðinu hér. Sama með pasta.

Takk.