Ég veit ekki alveg hvar þetta átti heima og fannst þetta einhvern veginn best passa við heilsu.

En allavega, vinur minn á 2ja ára edrú afmæli í dag og er búinn að taka þá ákvörðun að fá sér í glas núna um helgina, þar sem hann telur sig vera lausan við púkann.

Hvað get ég gert? Ef ég reyni að koma viti fyrir honum þá segir hann bara að hann nenni ekki að ræða þetta við mig og flýr gjörsamlega umræðuna.

Ég er alveg ráðalaus.
Gaui