Ég var að taka eftir því núna áðan að ég er kominn með einhversskonar bleikar rendur eða e-ð svoleiðis í húðina á bicepinn rétt við hliðiná handakrikanum að framan, ég veit ekkert hvað þetta er en finn ekkert fyrir þessu, veit einhver hvað þetta gæti verið ?

Fór í morgun í bekkpressu og það er frekar langt síðan ég tók bekk en var bara að taka frekar lítið 40 kg eða e-ð og fór svo á brazilian jiu jitsu æfingu í fyrsta skipti í kvöld þannig það gæti tengst öðru hvoru þessu ?

Fyrst þegar ég sá þetta hélt ég að þetta væri slit og trúi því nema einhver komi með betri skýringu.

Með von um góð svör!