Jæja það var verið að tala um að senda inn grein svo ég fór að hugsa um hvað í ósköpunum ég gæti skrifað til að það myndi enda sem grein og ekki það heimskulegasta í heimi ! :)

Þannig að ég ætla að byrja kynna sjálfan mig…ég er KVK enginn nörd (ekki nema þið sjáið fyrir ykkur einhverja bælda ömurlega manneskju sem á sér ekkert líf oghengur í tölvu) nei ! ég kynntist þessarri dellu í gegnum kærastann minn sem gjörsamlega bjó í þessum leika og það var farið að vera pirrandi þegar hann hékk í þessu á kvöldin og það var verið að hamast á músinni og bölvað eitthvað þegar hitt og þetta fór úrskeðis.

Þá byrjar það að ég spyr hann sakleysilegrar spr. hvort ég megi nú prófa þetta….og NEI var nottla svarið sem ég fékk én ég gafst ekki upp þar sem ég hef nú gaman að prófa tölvuleiki sem virðast vera skemmtilegir (t.d Wolfenstein ágætur) svo hann gefst upp og býr til Char handa mér og ég valdi nottla Sorcerss og þar með hófst upphafið af Diablo hjá mér.

Ég byrja í bænum og veit ekkert hvað takkarnir gera og hvað á að gera svo kærastinn stendur fyrir aftan mig og segir svona til og hvað ég eigi nú að gera og hvað sé best að gera. Jæja þetta er farið að ganga ágætlega ég með mína kellingu og við bókstaflega rúllum yfir fyrsta actinn….en svo þegar komið er í annan act þá fara hlutirnir að vera flóknari því kellingin hefur ekkert líf og steindrepst bara leið og ég fer að reyna drepa fuglana í destertinu :) svo það er bara gefist upp og ekkert nennt þessu lengur ! en svo leiddist mér eitthvað þannig að ég bjó til nýjan char…og það var sko Barbarian og mér líkaði hann vel og hef verið með hann síðan ! (kallinn sem ég er með núna er nottla ekki sá sem ég byrjaði með fyrst)

Svo er ég svo mikil tölvugella að ég fékk LOD eftir mikið suð og Crackaði hann með smá hjálp(ehemm kanski mikilli en það skiptir ekki) :) svo hef ég bara orðið húkt á þessum leik þar sem hann er algjör snilld….alltaf eitthvað nýtt og alltaf hægt að fara drepa þennan aftur eða dútla sér í Cow lvl sem er algjör snilld…að drepa beljur og baulandi í þokkabót, þegar ég fyrst sá þær þá sprakk ég úr hlátri…en draslið sem þær droppa af sér er bara misjafnt.

En well ég er svona búin að segja reynslu mínu í grófum dráttum hvernig ég kynntist Diablo !! :) og nottla LOD so ég vona að þetta sé allveg ágæt lesefni en endilega komið með einhver comment, ég held að mér veiti ekki af því :Þ
Ka^zg^aR has made his point here