Hef lent í svipuðu á norðurleið eftir Vesturlandsveginum í Mosfellsbænum, þ.e. á kaflanum frá Hlíðartúnshverfinu að fyrsta hringtorginu. Þar rúllaði einn í rólegheitunum hægra megin framúr bílaröð (sem þó var á rúmlegum hámarkshraða, enginn lestarstjóri eða þvíumlíkt). Mér brá vitanlega hrikalega og var hreinlega ekki alveg að trúa þessu. En þetta sýnir bara að heimsku manna eru engin takmörk sett.