Satt að segja finnst mér alveg ótrúlegt að vefur Domios fái tilnefningu. Alveg einstaklega ónothæfur vefur. Tekur til dæmis þó nokkurn tíma að finna símanúmerið þeirra. En eins og hefur verið bent á í þessum spjallþræði þá er verið að gefa verðlaun fyrir útlit, ekki innihald. En það breytir því þó ekki að Dominos lendir neðst á listanum. Ísal fær mitt atkvæði, snyrtilegt og skemmtileg tenging við álið með lotukerfistilvísuninni.