Ein pæling, er nokkuð hægt að skilgreina sportbíl? Verður það ekki yfirleitt eitthvað huglægt mat? Til dæmis held ég að allir geti verið sammála um að Porsche 911 er sportbíll en er Porsche Cayenne það? Mitt mat er að hann er það ekki þó hann sé örugglega mjög skemmtilegur að keyra. Annað dæmi: Flestir ættu að vera sammála um að BMW Z8 er sportbíll en svo er það BMW M5 bíllinn, er hann sportbíll? Hann hefur aflið og aksturseiginleikana en hann er engu að síður fjögurra dyra fjölskyldubíll!...