Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.776 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

Bilar (0 álit)

Bilar Einn kraftmesti og hraðskreiðasti Lotus götubíll fyrr og síðar var byggður á Opel Omega. Með hóflegu boddíkkitti leit hann ekki illa út m.v. að byrja lífið sem Opel. Lotus Omega gat líka státað af twin-turbo 3.6l V6 með 377hp og hámarkshraða yfir 300km/h. Ekki slæmt árið 1989! Mál að muna að fara bara varlega í blautum hringtorgum, maður vill jú ekki eyðileggja einn af 950 bílum framleiddum.

Bilar (0 álit)

Bilar Það voru ekki aðeins nýjir bílar sem voru kynntir á Bílasýningunni í Frankfurt. Toyota kynnti til sögunnar nýtt logo sem sést á meðfylgjandi mynd. Logoið myndar stafinn T sem stendur fyrir Toyota. Til að byrja með ætlar Toyota að nota þetta logo fyrir Formula 1 lið sitt enda má finna stafinn F hægra meginn í logoinu og tölustafinn 1 vinstra megin. Einnig má lesa út stafinn V sé horft á svarta svæðið vinstra megin og rauða svæðið hægra megin og á það að standa fyrir “Victory”.

Mótorhjól (3 álit)

Mótorhjól Hvað hefur maður við framdrif að gera ?

Bilar (0 álit)

Bilar já gott fólk, hérna er heimsmeistarinn í rallý! ekki makinen, ekki mcrae, heldur Richard Burns… hann sigraði með 44stigum og hann keyrir (fyrir þá sem vita það ekki) Subaru Imprezu. takk fyrir og góða nótt! :) (/me í góðu skapi;D)

Bilar (0 álit)

Bilar Ég vann Yaris þrisvar í GT3 og í öll skiptin var hann bleikur! Í fyrstu fannst mér hann alveg forljótur en eftir að hafa sett undir hann gylltar felgur og lækkað hann, þá er hann ekki alveg eins ljótur :)

Bilar (0 álit)

Bilar Hér er mynd af hondunni minni sem er af gerðini Civic og er 1600VTI og er nú tjúnuð í 190HÖ!
Sendi þetta aðalega útaf umræðunni um filmur í framgluggum.
Mínar voru teknar eftir minna en viku :(

Bilar (0 álit)

Bilar Jaguar XJ220 tekur smá stökk

Bilar (0 álit)

Bilar Lotus hefur tilkynnt að stefnt sé að setja Elise á markað í Bandaríkjunum. Ég tel augljóst að nokkrar breytingar þurfi að vera gerðar á bílnum en Lotus hefur tilkynnt að bílar fyrir ameríkumarkað fái mýkri fjöðrun en þeir sem eru seldir í Evrópu. Líklegt þykir að notuð verði önnur vél en Rover K sem hefur verið í öllum Elise framleiddum hingað til. Vélin á að vera um 120hö og verður áreiðanlega notast við mótor sem þegar er á markaðinum vestra. Verðið á að verða $38.500 og mun sölu á Esprit, sem er eini bíll Lotus núna á Ameríkumarkaði, verða hætt.

Ég verð að segja að ég hef sjaldan séð betri þrennu en þá sem er á myndinni en hún er tekin af www.pistonheads.com þar sem fréttina er einnig að finna.

Bilar (0 álit)

Bilar Skoda Auto kynnir nýjan coupe Skoda á Bílasýningunni í Genf sem hefst nk. fimmtudag. Nýji bíllinn heitir Skoda Tudor og er byggður á Skoda Superb en sá bíll er byggður á undirvagni VW Passat. Aðeins ein vél hefur verið í nefnd í sambandi við bílinn og er hún 2.8 lítra V6 bensínvél sem á að skila 193 hö

Bilar (0 álit)

Bilar Nýjustu Lödurnar á markaðinum http://www.autolada.hg.pl/future.htm og http://www.carenthusiast.com/shows/mo99_pic.htm
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok