Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.776 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

Bilar (0 álit)

Bilar Stola breytti þessum Porsche Boxster til að sýna getu fyrirtækisins. Hugmyndin er að gera nútímalega útgáfu af Porsche 550 Spyder, en þannig bíl dó James Dean einmitt í. Stola fannst ekki nóg að breyta útlitinu heldur eru aðrar breytingar meðal annars að setja upptjúnnaða vél úr Porsche 911 Turbo í gripinn. Þó það hefði ekki verið ráðgert verða örfáir S82 smíðaðir fyrir einhverja heppna einstaklinga.

Flug (0 álit)

Flug TF-LIF á Reykjavíkurflugvelli á flugdegi 1994

Bilar (0 álit)

Bilar VW ofurbíll. Knúinn af vél með 12 strokkum raðað í W til að gera vélina minni. Þetta eru í rauninni 2 VW VR6 vélar á einum sveifarási… Verð á að fera í kringum 10 millur í Þýskalandi.

Flug (0 álit)

Flug Boeing 747-400 “Wunala Dreaming” flugvél Ástralska flugfélagsins Qantas rétt eftir flugtak. 400 týpurnar þekkjast á endavænglunum (e. winglets). Reyndar eru ekki endavænglar á vélum Japan Airlines en Boeing verksmiðjurnar láta “winglet-kit” fylgja þeim “til seinni tíma nota”.

Bilar (0 álit)

Bilar Hraðinn Drepur!

Bilar (0 álit)

Bilar Citroën SM, stór GT bíll sem kom fyrst fram 1970 en á þeim tíma átti Citroën meirihluta í Maserati. SM var með V6 vél frá Maserati og allt raf- eða vökvaknúið eins og Citroën var lagið. Það má segja að viðhald hafi ekki verið einfalt mál í þessum framdrifna, hraðskreiða og glæsileg GT bíl sem var hætt að framleiða 1975 eftir að aðeins tæplega 13.000 eintök höfðu verið smíðuð.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er hin nýja Mazda 6 sem mun koma í staðinn fyrir Mazda 626. Mazda er í óða önn við að gera ímynd sína meira spennandi og óneitanlega lítur þessi bíll út fyrir að vera meira spennandi en 626.

Mótorhjól (0 álit)

Mótorhjól Þetta Triumph rokkar !!!!!

Bilar (0 álit)

Bilar Rakst á þessa mynd þegar ég var að leita að upplýsingum um bíla knúna túrbínum. Á myndinni er verið að aka GM Firebird túrbínuknúnum tilrauna bíl um götur Detroit.

Bilar (0 álit)

Bilar Einn fallegasti smábíll fyrr og síðar, a.m.k. í þriggja dyra formi og enn fallegri í GTi útfærslu. Peugeot 205 GTi 1.9 var enn fallegri en 1.6 vegna glæsilegra 15" álfelgnanna sem pössuðu honum einstaklega. Mig langar ákaflega mikið í svona bíl í góðu standi og með vökvastýri. Og auðvitað verða að vera upprunalegar felgur líka! Minn má samt frekar vera rauður ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok