Eina myndin sem hefur verið birt af Ferrari FX eins og hann er í dag kallaður. Líklega mun nafnið breytast í F60 eins og við afmælismódel á en því miður heldur FX áfram hefðinni að hvert afmælismódelið verði ljótara en það á undan…
Nýjustu Lödurnar á markaðinum http://www.autolada.hg.pl/future.htm og http://www.carenthusiast.com/shows/mo99_pic.htm
Skoda Auto kynnir nýjan coupe Skoda á Bílasýningunni í Genf sem hefst nk. fimmtudag. Nýji bíllinn heitir Skoda Tudor og er byggður á Skoda Superb en sá bíll er byggður á undirvagni VW Passat. Aðeins ein vél hefur verið í nefnd í sambandi við bílinn og er hún 2.8 lítra V6 bensínvél sem á að skila 193 hö
Lotus hefur tilkynnt að stefnt sé að setja Elise á markað í Bandaríkjunum. Ég tel augljóst að nokkrar breytingar þurfi að vera gerðar á bílnum en Lotus hefur tilkynnt að bílar fyrir ameríkumarkað fái mýkri fjöðrun en þeir sem eru seldir í Evrópu. Líklegt þykir að notuð verði önnur vél en Rover K sem hefur verið í öllum Elise framleiddum hingað til. Vélin á að vera um 120hö og verður áreiðanlega notast við mótor sem þegar er á markaðinum vestra. Verðið á að verða $38.500 og mun sölu á Esprit, sem er eini bíll Lotus núna á Ameríkumarkaði, verða hætt.
Nýr concpt car: Maserati Kubang GT Wagon. Sjá nánar á http://www.maseratinet.com/MCI/kubang.asp