Ég var að fá þetta svaðalega e-mail núna í pósti:

———————–

!!!!!!BREAKING NEWS!!!!!!!

MIÐASÖLU Á NEXUSFORSÝNINGUNA Á TWO TOWERS
HEFUR VERIÐ FRESTAÐ UM VIKU TIL SUNNUDAGSINS 8. DES KL. 17.

SÝNINGIN ER ENN ÁÆTLUÐ 12. DES.
EN MIÐASÖLU HEFUR VERIÐ FRESTAÐ VEGNA ÓVISSU UM ENDANLEGA DAGSETNINGU.

ÁSTÆÐA ÞESSA ER AÐ NEW LINE CINEMA,
EIGANDI MYNDARINNAR HEFUR TAKMARKAÐ MJÖG FORSÝNINGAR Á MYNDINNI
VEGNA ÓTTA UM AÐ HÚN VERÐI NETSJÓRÆNINGJUM AÐ BRÁÐ.

VIÐ MUNUM SENDA ÚT TILKYNNINGU UM ENDANLEGA
DAGSETNINGU UM LEIÐ OG LEYFI HEFUR VERIÐ FENGIÐ AÐ UTAN.

ATHUGIÐ AÐ ENGIN HÆTTA ER Á ÞVÍ AÐ HÆTT VERÐI VIÐ FORSÝNINGUNA,
ÞETTA ER BARA SPURNING UM AÐ NEGLA NIÐUR DAGSETNINGUNA.



Ps. farið og sparkið í alla vini ykkar sem eru svo vitlausir að horfa á
bíómyndir í tölvum, þetta er þeim að kenna!

———————–

Svo basically, þá er enn alls óvíst hvenær sýningin er en langlíklegasti dagur er 12. desember eins og áður. Auðvitað eru þetta vonbrigði fyrir marga, sérstaklega þá sem að er að fara í erfið próf deginum á eftir eða 2 (þ.á.m. ég), en því miður neyðumst við víst til að sjúga þetta upp í okkur.

Fyrir þá sem að ætla að bíða og fara, sjáumst í biðröð og/eða á forsýningunni. ;)

Villi-