Já, þetta er afskaplega líkt allt saman. XP er bara með miklu meira af óþarfa rusli, td. skinnable GUI, hvolpur sem segir þér fyrir verkum, endalausir “töfrar” (“gandálfar”, wizards), innbyggðar lélegar útgáfur af grunnforritum (td. eldveggur og skrifaraforrit) ofl. sem að hægir bara á mikilvægari vinnslu, veldur óþarfa árekstrum við forrit frá þriðju aðilum og pirrar mig. Þegar Win2k er ekki nógu gott lengur, þá verð ég vonandi búinn að skipta yfir í Linux :)