Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zion
zion Notandi frá fornöld 48 stig
Áhugamál: Heimspeki, Bílar

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Er semsagt ekki hægt að partitiona disk með “Disk management” (Control Panel -> Computer Management) tólinu í win2k? Ég fæ þar amsk. þann möguleika að eyða partitioni og ef ég man rétt get ég líka búið til partition þar.

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ef þú ætlar að losa þig við það partition (þeas. formatta) sem inniheldur Windows2000 eða XP er mjög þægilegt að nota Win98 startup diskettu og keyra fdisk og eyða þannig partitioninu. Mér var sagt að þetta væri líka hægt að gera með því að boota af Win2k install CD disknum og keyra eitthvað Administration manager eða e-ð. Ég hef aldrei prófað það. Kannski var það bara að halda inni F8 á meðan Windows startar sér… æi ég man það ekki. Allavega virkar win98 diskettan alltaf. Svo er líka hægt...

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Kíktu í control panel -> Administrative tools -> Computer Management og veldu svo “Disk Management” og athugaðu hvort þú getir ekki fiktað þig eitthvað áfram þaðan ;) Það á yfirleitt ekki að vera mál að koma hörðum disk í gang og algjör óþarfi að vera að borga einhverjum tölvubúðum formúgu fyrir það :) nema nottlega að það sé ókeypis…

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ef þú ert að nota FDisk í þetta ertu ábyggilega ekki með NT stýrikerfi. Ég býst við því að þú sért með 98/ME? NTFS er bara í Windows NT/2000/XP. Ef þú sérð diskinn ekki í windows ertu annaðhvort ekki búinn að gera partition eða þá að hann er formattaður með einhverju skráarkerfi (td. FAT16, FAT32, NTFS, HPFS osfrv.) sem stýrikerfið þitt nær ekki að lesa.

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Þú verður að rístarta eftir að þú býrð til nýtt partition. Prófaðu að eyða þessu partitioni og búa svo til nýtt, rístarta og formatta svo.

Re: GF4 TI4400 og ViA KT333?????

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hvernig hljóðeinangrun ertu með?

Re: Antivirus búnaður

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Norton Antivirus er að mínu mati besta vírusvarnarforritið. Ég hef prófað þó nokkrar útgáfur af þeim en sú allra besta sem ég hef prófað er Corporate Edition. Maður finnur ekki fyrir því að hún sé í gangi. Mér finnst margar hinar útgáfurnar vera frekar þungar. Kannski það sé bara kominn tími til að uppfæra ;) XP er mjög vandlátt á kerfistól. Ef það er ekki með feitann XP límmiða á sér, þá virkar það ábyggilega ekki.

Re: XP vs. 2K fyrir idiot (mig)

í Windows fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég hef einmitt lent í sama veseni við að gera clean install (semsagt ekki upgrade) af XP. XP setuppið keyrir ekki af Win98 bootup floppy disk og það eru ekki XP bootup floppyar á geisladisknum (einsog með Win2k). Þess vegna er eina leiðin að ræsa upp beint af geisladisknum og það getur orðið hvimleitt. Hins vegar minnir mig að það séu XP boot floppy diskar hérna einhversstaðar á Huga… Það vantar einmitt naktar kellingar í windowsið… bara aðeins til að fríska uppá það… XP er mjög fínt og...

Re: Spöglering

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég keypti svona einangraðann kassa í Hugveri fyrir svolitlu síðan, janúar eða febrúar og þá kostaði hann þar ca. 10.000kr. Ég keypti hann reyndar fyrir frænda minn þar sem ég var að setja saman tölvu fyrir hann en þetta er alveg frábær kassi. Mjög góður og vandaður, þéttur og traustbyggður. Ekki svona “tin” kassi einsog margir af þessum kössum sem er verið að selja. Ef ég fengi mér kassa yrði það annaðhvort <a...

Re: XP vs. 2K fyrir idiot (mig)

í Windows fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ef þú ert bara einfaldur “notandi” mæli ég með XP vegna þess að það gerir allt fyrir þig og er með allt innbyggt og fínt. Harðari “töffarar” (as in: nördar :p ) hata allann þannig viðbjóð og ógeðslegheit og kjósa frekar öflugra og fiktvænna kerfi sem er ekki alltaf með eitthvað kjaftæði. Enginn harðkjarna nördi vill hafa lítinn hvolp til að hjálpa sér að leita að skrá!!! XP gerir líka mun meiri vélbúnaðarkröfur og er leiðinlegt á hægari tölvum. Sérstaklega með 128mb eða minna af innra minni....

Re: uppfærsla, Xp -vs- Win2kpro

í Windows fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Windows 2000 á báðar. 128mb minni er ekki minimum fyrir Windows 2000. Ég hef séð það keyra á 32mb og ég er með eina sem keyrir það mjög vel með 96mb. 128mb er því mjög fínt. Það er hins vegar mjög leiðinlegt að vinna á vél með 128mb minni sem keyrir XP. XP er líka “system resource” átvagl frá helvíti.

Re: Sharing adsl á windows 98

í Windows fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ef þú ert með Win98 Second Edition er þetta router forrit innbyggt og kallast Internet Connection Sharing eða ICS. Þú getur fundið meiri upplýsingar um það <a href="http://www.hugi.is/windows/bigboxes.php?box_id=31375&action=cp_grein&cp_grein_id=453“>hér</a>. Önnur forrit eru td. Wingate ofl. Kíktu bara á <a href=”http://tucows.islandia.is/>Tucows</a> og leitaðu.

Re: XP SP1

í Windows fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Þá er kominn tími til að snúa sér að Linux…

Re: ATE powersupply....???????

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Er þetta ekki í svona “mini” borð kassa? Ef svo er hljóta þessir merkja gaurar að eiga svona. EJS, Nýherji, Tæknival og þessar snobb búðir ;) Þetta einnar raðar system er úr gömlu góðu AT spennugjöfunum.

Re: Vantar smá hjálp...

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ef þú treystir þér ekki til að uppfæra sjálfur og þekkir engann sem er bæði viljugur og fær um að gera það fyrir þig, þá ættiru að íhuga “súper uppfærslurnar” svokölluðu. Það er margt betra þarna úti en þetta dót ætti allt saman að virka. Mundu líka að þegar þú færð tölvunördinn vin þinn, frænda eða kunningja í heimsókn í nokkra klukkutíma til að setja saman fyrir þig tölvu, setja hana upp eða bara laga “smá vandræði”, þá er hann að fórna sínum frítíma í að vinna. Það er of oft sem það er...

Re: 15" skjár til sölu

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Var bara að pæla hvort þetta væri yngri eða eldri týpan. Ég átti eins skjá og kunni mjög vel við hann þar til hann dó fyrir skömmu úr ofnotkun og LAN ævintýrum ;) Þetta eru fínir skjáir og það gæti verið að ég kaupi hann af þér seinna í sumar þegar fjárhagsstaða mín hefur batnað svolítið, þeas. ef hann verður ekki seldur þá. Skrambinn, mig langaði í svona controller :p

Re: 15" skjár til sölu

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Er hann með OSD? Hvað er hann gamall? btw. hvað á svo að gera við UDMA100 controllerinn? ;)

Re: Microsoft rolls out first XP service pack

í Windows fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Max uptime á honum Gvendi mínum er 100 dagar. Þá var hann með eftirfarandi vél- og hugbúnað. -Intel Pentium 100MHz (overclockaður @ 133MHz) -Eitthvað móbó með Intel kubbasetti -96mb EDO RAM -Cirrus Logic 1mb skjákort -CNet 10/100 Netkort -iTex ADSL módem (innbyggt) -3.2gb Maxtor, 6.4gb Quantum Fireball, 500mb Toshiba -Hvorki floppy drif né geisladrif, hver þarf það á sörver hvorteðer??? Hann keyrði: -Windows 2000 Pro, Service Pack 2 -ZoneAlarm Free Edition -RTVNC -Apache 2.x HTTP þjón -FTP...

Re: Útsala..........................................

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Hvað viltu fá fyrir minnið eitt og sér?

Re: Vantar ráðleggingar fyrir AMD+móbó

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Í þessa vinnslu myndi ég velja Intel örgjörva. Saga Intel er betri þegar kemur að stöðugleika og samhæfni. Þó svo AMD örgjörvarnir séu mjög góðir og skari fram úr Intel á mörgum sviðum, að ekki sé minnst á verð, þá er Intel samt meira svona þungrar vinnslu græja. Ég er samt AMD maður :p

Re: Getiði hjálpað mér...??? :o) Uppfærsla!!

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ef þú ferð að fá þér fínann stórann örgjörva þarft þú stærra power supply (í raun straumbreytir) og þá er best að kaupa bara nýjann tölvukassa. Það eru komnir svo margir nýjir staðlar síðan tölvan þín var ný að þú endar með nýja tölvu.

Re: KT7-RAID mobo og Amd 900

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ég hefði áhuga á þessu. Gætiru samt sagt meira um örgjörvann, þeas. hvort þetta sér Duron eða Thunderbird? Hvað segiru um 8000kr (miðað við Duron)?

Re: MJÖG, MJÖG alvarlegt vandamál

í Windows fyrir 23 árum, 11 mánuðum
He he… Það er líklega forrit í startuppinu hjá þér sem að loggar þig út. Finndu exe skránna og eyddu henni eða finndu shortcuttinn og eyddu honum. Hins vegar gæti skipunin til að ræsa forritið verið í registryinu og þá flækist málið… Gætir prófað last good configuration eða e-ð.

Re: Raid

í Windows fyrir 23 árum, 11 mánuðum
<a href="http://www.acnc.com/04_01_00.html“>Hérna</a> eru allar tegundir RAID útskýrðar vel og vandlega. Annar munur á SCSI og IDE dótinu er að SCSI stýringin er með sér örgjörva sem sér um alla vinnslu á meðan vinnslan á IDE draslinu notar venjulega örgjörvann. Það þýðir að sama hvað SCSI diskarnir eru að lesa og skrifa, þá hægir það ekkert á annarri vinnslu, ólíkt IDE diskunum. Til dæmis ef þú ert með SCSI skrifara getur þú verið að vinna á fullu í tölvunni meðan þú skrifar án þess að hafa...

Re: allt í fokki eftir vírus.

í Windows fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Var ekki til eitthvað DOS forrit sem hét “unformat”? Mig rámar eitthvað í það amsk… spurning samt hvort það myndi laga eitthvað ef að partition upplýsingarnar eru horfnar :p Þú getur líka prófað “PowerQuest Partition Magic”. Gæti verið að það sé svona fídus þar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok