Ákveðin en lítil prósenta af sektum renna til Lögregluembættisins, það var heimilað fyrir nokkrum árum. Ekki viss um hvar hjá löggunni það lendi en það fer í einhvern sjóð. Þarna er komið brot á hinu þrískipta valdi, tenging á milli dóms- og framkvæmdavalds.
Sá test á að mig minnir steisjón WRC Focus í Car um daginn. Fínar tölur. Er þetta bíll sem Brimborg hefur hug á að bjóða uppá og setja til höfuðs Impreza ‘einokuninni’?
…Sjálfskiptingarnar verða allar á hefðbundnum stað en ekki í stýrissúlu eins og í 7 bílunum… Eru sjöurnar með American Style skiptingar? Heimur versnandi fer :-(
Það sem hræðir mann frá 6 cyl bílunum er þessi BW skipting. Menn tala um 70k km og þá sé hægt að ryksuga upp úr henni, því allt fer í mauk. Annars hafa menn verið að mixa jafnvel skiptingu úr Toyota Hilux, hvernig svo sem það hljómar ;-)
…Bosch er með hlut í þessum bíl sem er rafræn innstpýting, sem er notuð til þess að gera bílinn meðal annars hljóðlátari… Fræðið mig nú fáfróðan mann, hvað kemur innspýting hljóði við (nema að litlu leiti)?
Að mínu mati er í góðu lagi að skella léttum svuntum og spoilerum á ef það er smekklega gert. Flestir bílar koma tiltölulega plein svo oft gerir mikið að td. samlita. Séu hins vegar komin einhver fáránleg ljós út um allan bíl og einhver flugvélastél er þetta orðið tú mötsj! Understatement is better than an overstatement ;-)
True, ég fór af ‘99 VTEC yfir á ’96 rollu 1.3 og aksturseiginleikarnir (eða öllu heldur vöntun á þeim) hræddu mig. Þorði ekki að krúsa hraðar en 100-110 á þjóðvegi, Civicinn var fínn á 140-160. En það verður að segjast að rollan var fín til ætlaðs brúks. Gjörsamlega metnaðarlaust “farartæki” eingöngu hugsað til að færa fólk frá A til B. Skemmtilegra að sitja í strætó en að keyra svona rollu!
Ég segi það aftur: Útúrkittaðir “vélarlausir” bílar, lesist RICE = Að troða sokk ofan í nærbuxurnar svo vissir líkamspartar virðist stærri en þeir eru >;-)
Tilvitnun: …Þetta er mjög slæmt á miklum hraða og verulega óþægilegt…. Af hverju keyra svona bíl á miklum hraða? Vona annars að þetta sé eitthvað einfalt að laga.
Jahh þá má sannlega segja að menn séu að selja loft ;-) Annars var umræða um þetta fyrir nokkrum mánuðum: http://www.hugi.is/bilar/korkar.php?sMonitor= viewpost&iPostID=700723&iBoardID=183
Þetta var vorið '99. Þá hafði verið skv. fjölmiðlum umsátursástand þarna austurfrá. Víst allt vaðandi í gengjum og læti. Höfuðpaurinn var víst einhver brennuvargur - Twisted firestarter.
Velkominn í raunveruleika fullorðinna ;-) Bíddu þangað til þú þarft að fara að eiga við LÍN, Íbúðalánasjóð, Sýslumann, Skattstjóra… Þetta lið er á miðöldum í upplýsingaflæði og lætur mann endalaust snúast og borga.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..