Hvernig var það samt með þinn kall þegar þú kláraðir cure-vampirism missionið? Varð hann bara aftur eins og þegar þú bjóst hann til í upphafi? Ég lenti í því að breytast í svona vampíruviðbjóð, sem er bara óþolandi, þurfa alltaf að vesenast í að drekka blóð, geta ekki verið úti á daginn og svona. Allavega, ég læknaðist af þessu loksins, en karakterinn minn varð ekki sá sami aftur. Nú er ég orðinn einhver lúði sem er ekkert líkur kallinum sem ég valdi í upphafi.