Varla, ég myndi nú segja að Lakers án Kobe væru betri en Miami án Shaq. Odom, Butler, Mihm, Grant og Divac eru þó nokkuð áhugaverðari en Wade, Jones, Jones, Haslem og Laettner. Miami gáfu nú frá sér 3 byrjunarliðsmenn (Grant, Odom, Butler) fyrir Shaq svo breiddin ætti að vera Lakers í hag. Svo veldur samningur Shaq því að lítið rúm er fyrir aðra launaháa leikmenn með honum í liði.