Ég, er orðin official liðahóra. Vince Carter, minn uppáhalds körfuboltamaður er farinn yfir til New Jersey Nets, og þar sem ég á afskaplega erfitt með að bindast einhverju liði sterkum böndum í NBA, eins og ég er bundinn Manchester United og svo Breiðablik hér heima.
En að leikmannaskiptunum.
Vince Carter fór frá Toronto Raptors, fyrir þá Alonzo Mourning, Aaron Williams og Eric Williams og og tvo drætti í fyrstu umferð nýliðavalsins.
Ég verð nú bara að segja að mér finnst New Jersey Nets vera komnir með ansi sterkt starting-lineup. Kidd-Carter-Richardson-Scalbrine og Collins. Þó aðallega þeir 3 fyrstu sem ég nefndi. En ég er þó enginn sérfræðingur í þessu, og eflaust margir hérna sem vita betur en ég.
Ég á bestu brauðrist í heimi.