Já þessi leikur er á morgum og er þetta að mínu mmati stærsti leikur ársins. Afhverju??
jú það eru margar ástæður fyrir því. þetta er nú ekki bestu 2 liðin í deildini en þau hafa að geyma tvo af bestu 5 leikmönnum deildarinar og það sem meira er þeir spiluðu saman í mörg ár og unnu 3 NBA titla saman. En það sem er skemmtilegast við þetta allt saman er að þeir eru alls ekki vinir og hafa eiginlega aldrei verið það.
Bæði Kobe og Shaq vildu vera númer 1 hjá Lakers og það fór svona pínu illa með þá. Ekki bætti um skák að kobe ásakaði Shaq fyrir að hafa líka sofið hjá öðrum konum(reyndar var hann um daginn að byðjast afsökunar á því). Svo auðvita valdi Lakers Kobe fram yfir Shaq og Phil jackson.

Ég held að þetta verði svakalegur leikur, en Miami er eins og staðan er í dag með betra lið og ætti því að vinna þetta en það verðu svakalegt að fylgjast með því þegar Kobe kemur fljúgandi inní teigin og Shaq býður eftir honum þar.
Shaq kom með þau skemmtilegu umæli um daginn að hann væri múrveggur og kobe væri corvetta og það vita allir hvernig fer fyrir corvettuni þegar hún klessir á vegginn. Kobe svaraði pínu fyrir sig og sagðist vera blanda af Corvettu og Hummer svo að það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta endar allt saman.

Gleðilega jól og hafið þið það gott yfir jólinn
Vertu þú sjálfur og gerðu það sem þú villt