Ég myndi segja að fatastíllinn minn sé bara samblanda af öllu sem mér finnst flott, þægilegt og fer mér að sjálfsögðu vel. Buxur eða pils, hlýrabolir, bolir og allskonar peysur yfir til að gera flóruna skemmtilega :) Svo elska ég líka skó! Og fylgihlutir eru alltaf skemmtilegir, klútar, töskur , skartgripir og allt þar fram eftir götum. Uppáhaldsbúðirnar mínar eru Spútnik og Rokk&Rósir svona helst, þó ég versli allsstaðar annars staðar líka!:)