Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Samfés

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Jább þetta er strákur ;) Hehe ég var líka alveg á báðum áttum þegar ég heyrði þetta fyrst á netinu… Hann er bara með svona stelpulega rödd :P

Re: Hvaða skóli?

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég ætla annað hvort í Kvennó, MR eða MH, er bara ekki búin að ákveða það alveg. Leist mjög vel á Kvennó í skólakynningunni, ekki alveg eins vel á MR reyndar… En svo er náttúrulega alltaf möguleiki á Verlzó eða aðra skóla, ég sé bara til þegar nær dregur :)

Re: Samræmd Próf

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég ætla nú bara að taka þau öll. Það er reyndar líklegast að ég fari á málabraut í framhaldsskóla, en ég ætla nú samt að taka samf.fr. og nátt.fr., bara til öryggis.

Re: K ennari :@

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þessi kennari minnir mig óhugnanlega mikið á stærðfræðikennarann minn. Það er sko algjör martröð að hafa hana til að kenna manni. Hún öskrar á mann og segir manni að fylgjast með þó maður hafi fylgst alveg með og búinn að skrifa allt niður sem hún skrifaði upp á töflu… Því miður held ég að þú getir ekki látið reka þennan kennara, en þú getur auðvitað talað við skólastjórann eða einhvern annan og kvartað. Það eru alltaf einhverjir að kvarta undan stæ.kennaranum okkar en hún verður sko...

Re: Samfés

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ok.

Re: Samfés

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Nei 10. Af hverju spyrðu?

Re: Samfés

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Já, mér fannst ballið heldur ekkert sérstakt, fannst líka asnalegt með þessa hringrás. En ég meina, annars hefðu allir verið að troðast upp og niður stigana og það hefði örugglega ekki endað vel. og takk :)

Re: Samfésballið

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þér finnst kannski ekkert gaman á Samfés söngkeppnum en mér fannst gaman í fyrra og hitteðfyrra, fyrir utan það hvað þær voru sjúklega langar. En núna á hún að vera allavega 2 tímum styttri þannig það verður örugglega skárra.

Re: Samfésballið

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þú hefðir átt að vera aðeins lengur… Mér fannst allavega langskemmtilegast þegar Jagúar spiluðu, hitt fannst mér eiginlega ekkert spennandi. Nema kannski Á móti sól líka.. En ég vona að keppnin á eftir verði þessa 2000 kalls virði :)

Re: Samfésballið

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Keppnin sjálf fer ekki fram fyrr en í dag, Sardina var að tala um ballið sem var í gærkvöldi.

Re: Michael Jackson

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Jájá, ég get svosem ekki neitað því…

Re: Michael Jackson

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ahm.

Re: Michael Jackson

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það héldu líka margir að hann væri stelpa þegar hann spilaði á samfés, en hann er alls ekkert stelpulegur núna sko… Þetta er líka 2-3 ára gömul mynd.

Re: Skrítið eða skrýtið?

í Hugi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Samkvæmt Ensk - íslensk, íslensk - ensk vasaorðabókinni (var með hana við höndina) er það skrýtið.

Re: Michael Jackson

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég þekki strákinn á sellóinu (ekki kontrabassa!) og hann líkist Jackson engan veginn nema kannski á þessari einu mynd.

Re: Fermingar-förðun

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 1 mánuði
Systir mín málaði mig nú bara, lét á mig smá púður, maskara og gloss minnir mig… Alls ekki mikið sko, ég málaði mig nú heldur næstum aldrei á þessum aldri.

Re: hvenar byrjar Lost á rúv???

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Oh verða þeir svo sýndir í sjónvarpinu? Vinkona mín sagði að þeir yrðu ekki sýndir hér á landinu þannig ég er búin að ná í nokkra þætti… En jæja þá sparar maður allavega plássið í tölvunni. En ég er allavega nokkuð viss um að þeir eru ekki byrjaðir, er bara með Rúv þannig ég ætti að taka eftir þeim :P

Re: Skoðunarferð í Verzlunarskólanum

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég afsaka… Var bara frekar pirruð þegar ég skrifaði þetta… En ég er líklega búin að finna mér skóla til að fljóta með í kynninguna svo að ég hef tekið ánægju mína á ný :)

Re: Tónlistarforrit?

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég nota líka aðallega Real player. Er nýbúin að update-a bæði real player og windows media player og þeir eru mjög svipaðir finnst mér, báðir góðir og nægja mér alveg.

Re: Ást er .....

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þú meinar þá líklega í eintölu. Fattaði þetta ekki strax, fann bara út átuð. En já, þetta er skondið…

Re: Vinna í sumar?

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Sæktu um í Bónus/Nóatúni/Hagkaupum, alltaf not fyrir okkur '89 módelin á kassana þar. Svo geturðu líka bara farið í Kringluna og sótt um í öllum búðum sem þér líst á, systir mín gerði það og fékk vinnu strax. Ég veit líka um fullt af 14-16 ára einstaklingum með vinnu í matvörubúðum, sjoppum eða bakaríum þannig það er alveg möguleiki fyrir þig.

Re: Skoðunarferð í Verzlunarskólanum

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ohh ég hata skólann minn :( Níski skóli með sínar sérþarfir!

Re: Skoðunarferð í Verzlunarskólanum

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Já mér finnst það líka fáránlegt, veit ekki um neinn annan skóla en minn sem leyfir okkur bara að fara í þrjár skólakynningar! Skólinn minn þarf bara alltaf að vera svo öðruvísi. Var mjög lengi að velja úr þessa þrjá skóla sem ég ætla að skoða, langar sko að skoða a.m.k. 5 skóla!

Re: Skoðunarferð í Verzlunarskólanum

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Mig langaði svo á Verzló kynninguna en þessi fjárans námsráðgjafi í skólanum mínum ætlaði sko ekki að leyfa mér að fara í fjórar skólakynningar, þó ég myndi koma mér sjálf í skólann og allt. Pabbi þekkir líka námsráðgjafann í Verzló og talaði við hana og hún sagði að mér væri velkomið að koma með í kynninguna, en samt stóð námsráðgjafinn í mínum skóla fast á því að ég færi ekki í fleiri en 3 kynningar. “Þá myndu allir aðrir líka vilja fara í fleiri”, ég meina, ég færi ekkert að auglýsa það...

Re: Skoðunarferðin í gegnum MH

í Skóli fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þetta segja líka þeir sem ég veit um sem eru í MH, að maður bara verður sjálfkrafa partur af borði :P En ég bara get ekki ímyndað mér það alveg… er ekki beint þessi týpa sem talar bara við hvern sem er, hvenær sem er…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok