Auðs aflar iðin hönd (Úr Biblíunni). En þennan fékk ég í litlu eggi um daginn: Enginn verður hvítari þótt annan sverti. Tilviljun að ég og þeir sem ég var með vorum nýbúin að tala um hvítt og svart fólk (ekki illa) þegar ég opnaði eggið.
Flestallt með 50 cent og Eminem Í næturhúmi með Margréti Eir Bananaphone lagið Babycakes - 3 of a kind O-Zone - Dragostea Din Tei flestöll lög með Britney Spears og svo eiginlega allt tekknó eins og Scooter og það… og svo er eitt lag með Jónsa sem ég hata virkilega mikið en man ekki hvernig það er í augnablikinu (sem betur fer). Svo eru ýmisleg fleiri lög sem fara í taugarnar á mér en ég man ekki eftir fleirum núna.
Ég tek miðstigspróf (5. stig) á fiðlu í lok apríl :) Dagskráin mín: Concerto í A-dúr eftir Vivaldi (opus IV nr. 5) Rondo í D-dúr eftir Mozart Moment Musical í G-moll eftir Sv. Sveinbjörnsson (íslenskt verk) Og svo var eitt val, ég mátti annað hvort semja lag eða velja eitthvað aukalag sem er aðeins öðruvísi en hin á dagskránni og ég valdi (eða kennarinn minn aðallega) Ungverskan dans nr. 5 eftir Brahms. Svo tek ég æfingu nr. 27 í Mazas æfingabókinni (Opus 36, bók 1) Og tónstigarnir (+...
Ég var í Suzuki námi í 10 ár, er búin með það núna. Ég á þó kannski eftir að spila eitthvað í Suzuki bók nr. 8… Hef ekki spilað neitt í henni, bara bækur 1-7. Ef þú veist hvað ég á við.
Sammála með gælunöfnin, þoli ekki þegar fólk styttir Voldemort í Volli. En ég hef aldrei rekist á einhvern kalla Viktor Vikka nema Ron í ísl. bókinni. Ég á það þó til að kalla Hermione Herm, Hermi eða Hermy… nenni stundum ekki að skrifa allt nafnið.
Ég var skírð ca. mánuði fyrir ferminguna mína af því að það var það sem ég vildi (ekki vegna gjafanna). Annars voru tvær bekkjarsystur mínar sem fermdust ekki, einfaldlega af því að þær trúðu ekki á Guð, og einn frændi minn fermdist heldur ekki af sömu ástæðu en hann hélt samt litla veislu fyrir nánustu ættingja bara í tilefni að því að vera kominn á fermingaraldur or some (ekki það að ég fyrirlít það neitt)…
Ah, núna skil ég, hélt þú værir að tala um einhverja takka á huga eins og “gefa álit” eða eitthvað þess háttar. En það virkar ekki hjá mér að ýta á skrollhjólið á link þannig að linkurinn opnist í nýjum glugga… virkar það kannski ekki í Internet explorer?
Mig minnir að ég fékk 58.000 og ég var sko virkilega sátt við það, meðan fólk sem ég þekki var að fá hátt í 300.000 kr! Svo á ég eiginlega allan peninginn ennþá inná bankabók, ætla að eyða honum í eitthvað að viti.
Linkurinn virkar ekki hjá mér… En ég sé að það stendur “school shooting” í linknum og ef þetta er það sem ég held að þetta sé þá heyrði ég um þetta í útvarpinu… Einhver strákur sem réðst inn í skóla og skaut 8(?) nemendur og svo sjálfan sig eða e-ð þannig? Ógeðslegt…
Já alveg sammála, stundum vil ég getað lesið póstinn og svör þar sem linkurinn var meðan linkurinn er að opnast til dæmis… Og ég gleymi oft að hægri smella og velja “open in new window”…
Ég fékk ljósrit hjá kennaranum mínum úr “Aðalnámskrá tónlistarskóla” og þar stendur allt sem þar að spila á miðstigsprófi (allavega á fiðlu, stendur örugglega líka á píanói) og nákvæmar upplýsingar um tónstiga og þess háttar. Þú getur örugglega fundið þessa bók í tónskólanum þínum eða spurt kennarann þinn um hana.
Ég ætla bara að fá mér Nóa nr. 4 eða 5… í fyrra fékk ég bara eitt Nóa nr. 2 og það var sko ekki gaman, en í hitteðfyrra fékk ég minnir mig eitt nr. 5 og eitt nr. 4… Svo fæ ég alltaf eitt heimatilbúið frá ömmu og afa (borða það reyndar aldrei).
Úff já ég kannast sko við píptest, ég hata það svo innilega!! Ég nenni oftast ekki að fara mikið lengra en 5, oftast er ég með e-ð milli 5 og 6 ef ég man rétt en ég held að metið mitt sé 7,eitthvað sem ég náði fyrir nokkrum árum.
Aha, sama hér. Sérstaklega þegar fólk skrifar ca 20 “,” án þess að taka eftir því að hafa pikkað á vitlausan takka. Og þegar það skrifar “,,,” í enda hverrar setningar í stað “…”, þá er virkilega eins og það sé að gera þetta viljandi…
Svo sammála… ég fékk þennan 58 þús. kall, myndavél frá næstum allri föðurættinni og síma frá mömmu og pabba (held að fiðlan mín hafi reyndar verið fermingargjöfin líka frá þeim) og svo ýmislegt smærra. Mjög ánægð með það :) Mig langaði bara ekkert í sjónvarp og því tilheyrandi, ekkert pláss fyrir það í herberginu mínu…
Jamm ekki ég heldur… fékk eitthvað um 58þús… :P En ég er bara ánægð með það, á næstum allan peninginn ennþá. Allir sem ég þekki fengu miklu meira en ég og langflestir búnir að eyða því öllu…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..