Við förum norður í tvær nætur, river rafting á leiðinni, gistum held ég á Dalvík og verðum með einhvern frjálsan tíma á Akureyri. Nú vildi ég að ég væri í skóla úti á landi með fáa nemendur og hver nemandi fengi þá nokkuð mikinn pening fyrir ferðina, eins og einhver, fór hingað suður (11 nemendur held ég) og gerðu nákvæmlega allt sem hægt er að gera í útskriftarferð (nema til útlanda, væri samt alveg til í það!)