Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Eurovision: Eins gott...

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fannst þeir ömurlegir á fimmtudaginn, virkilega falskir, en voru samt mikið skárri núna. Samt skil ég vel að þú þolir þá ekki :P En ég ætla rétt að vona að Ísrael vinni ekki, hún er svo fölsk, skil ekki af hverju fólk er að kjósa hana!

Re: Gísli Marteinn strax byrjaður að meika það

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já satt er það, finnst samt svo leiðinlegt þegar þetta er orðið að svona miklum klíkuskap og að gefa nágrannaþjóðum stig en ekki vera að dæma út frá flutningi.

Re: Gísli Marteinn strax byrjaður að meika það

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jájá, fullt af lögum stolið þarna, finnst bara lélegt að vera að senda stolin lög í keppnina hvort sem það er bannað eður ei.

Re: Gísli Marteinn strax byrjaður að meika það

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Einmitt, ég heyrði það alveg í fyrsta skipti sem ég hlustaði á lagið. Finnst það svolítið líkjast You Give Love a Bad Name með Bon Jovi, allavega byrjuninni.

Re: Gísli Marteinn strax byrjaður að meika það

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Nei, heyrði hann ekki segja neitt spes áður, byrjaði samt bara að horfa þegar fyrsta lagið var byrjað. En norska lagið er bara svo stolið, svona blanda af Bon Jovi og Guns n' Roses. Samt gott lag og það verður pottþétt ofarlega því það er eitt af þeim fáu sem fær örugglega mörg atkvæði frá unglingum.

Re: Sirja boðar gleði

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Akkúrat, enginn tilgangur með því. Bara halda okkur í skólanum aðeins lengur fram á sumarið.

Re: Sirja boðar gleði

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Arg, svindl. Á tvær vikur eftir af venjulegum skóladögum, samt erum við búin með örugglega allar bækurnar okkar og höfum ekkert að gera.

Re: GRRRRRR..

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ok, minnir nefnilega að íslenskukennarinn minn hafi verið að pirrast yfir því um daginn að við segðum stundum tveim…

Re: Muffins

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já einmitt, mér fannst mjög erfitt að þurfa að minnka átið, en maður hefur víst ekki gott af þessu.

Re: Þetta ógeðslega Eurovision

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Aha, okkar lag var mikið betra en mörg þeirra sem komust áfram, og eruði að grínast með Ísrael? Var það ekki hún sem var geðveikt fölsk? Og Lettland… Falskir wannabe Olsen brothers. Skil ekki hvernig sumir komust áfram en ekki ísland… búningarnir voru reyndar ekki alveg að gera sig og partar af dansinum… En þetta er búið og gert, og fyrst Selma komst ekki áfram núna efast ég um að við munum nokkurn tíman komast áfram.

Re: Ég hata kennarann minn!!arg!

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég fékk kennarann minn til að hækka mig um 0,3 í líffræðiprófi, því hann fór ekki nógu vel yfir sum svörin, en þetta er nú óvenju mikið. (Fékk þennan sama kennara til að hækka ritgerðareinkunn um 0,5 :P)

Re: GRRRRRR..

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Kannski það sé bara verið að tala um mig :P Nei annars, GRRRRRR Ekki vera að setja út á stafsetningu fólks þegar þú getur ekki einu sinni skrifað tveim rétt. (Skrifar maður samt ekki tveimur frekar en tveim?)

Re: Muffins

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ohh ég elska þær!! Sérstaklega þessar ljósu með súkkulaðibitunum! Fékk æði fyrir þeim í Noregi í fyrra og hitteðfyrra og svo sá ég þær hér a Íslandi líka, það var sko gleðistund. En núna má maður víst ekki borða svona óhollan mat lengur.. :(

Re: Heimskur vinnuveitandi?

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Vinnuveitandinn minn er nú bara ágætis maður. Hann tók við af einhverjum sem var víst alveg út úr heiminum, var ekkert að fylgjast með starfinu þannig aðstoðarverslunarstjórinn sá um næstum allt.

Re: Vorpróf í 10. Bekk?

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er líka að byrja í vorprófum. Þau verða örugglega bara í næstu viku, en ég held ég taki bara 2 eða 3 próf. Svo er búið að banna að hafa svona prófdaga þannig við þurfum að taka prófin á skólatíma :(

Re: Samræmduprófin búin!"#!"#

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Arg!! Ég feilaði líka á þessu á prófi úr kaflanum um speglun! Ég var svo viss um að það væri ekki Æ, útilokaði það alveg, og svaraði V (efsti möguleikinn)!

Re: Asnaleg spurning

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég gerði það sama og þú, var samt ekkert mikið að pæla í þessari spurningu þannig ég fattaði ekki að þá ætti hún að sjá þotuna fyrst. Ég hugsaði bara að það væri svo bjart að hún gæti ekki séð hana strax :P

Re: Sirja boðar gleði

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jeij :D Til hamingju og takk og allt það! Reyndar ennþá eftir næstum þrjár vikur af grunnskólanum :/ En það leiðinlegasta er búið!! Jíha.

Re: Formúlublað á samræmdaprófi?

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jú við fáum þetta hér: http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/2004/10.bekk/0410nfrformulublad.pdf

Re: Samfélagsfræði - Mín svör - Taka skal hæfilegt mark á þeim

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hehe já en það er samt alveg týpískt að koma með svona spurningu fyrst að það var kennaraverkfall í haust. Samt voru prófin búin til áður en verkfallið byrjaði, og þá var væntanlega ekki búið að setja lög á það?

Re: Asnaleg spurning á samfélagsfræðiprófinu

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hehe akkúrat :P

Re: Asnaleg spurning á samfélagsfræðiprófinu

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég giskaði nú bara á eitthvað, var samt nokkuð viss um að það væri ekki í ósonlaginu, það er svo hátt uppi :P

Re: Kjötbollur

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Mmm frikadeller… ;)

Re: Samfélagsfræði - Mín svör - Taka skal hæfilegt mark á þeim

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já ég er alveg sammála þér. Fáránlega erfitt próf og flóknar spurningar, maður þyrfti að lesa allar samfélagsfræðibækurnar 50 sinnum (og kunna allt í þeim upp á 100) til að fá hátt í þessu prófi.

Re: Samfélagsfræði - Mín svör - Taka skal hæfilegt mark á þeim

í Skóli fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já, var að fatta það áðan að auðvitað er það löglegt, þannig ég er sammála þér!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok