Ég ætla að fara að kaupa bækurnar fyrir skólann á morgun, búinn að prenta út bókalistann, en er samt að spá í einu…

Hvað þarf ég af svona stílabókadóti? Það stendur ekkert um það á listanum, en ég held nú samt að ég þurfi eitthvað þannig… Svo, hvað þarf ég af stílabókum, möppum, skriffærum og svona sem stendur ekki á bókalistanum? Er á fyrsta ári í Versló, og er með fartölvu, svo ég þarf kannski eitthvað minna af skrifidóti….

Svo, hvar er best að kaupa þetta? Upp á bæði verð og úrval?

Endilega svarið.