Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Bara smá pælingar í hausnum á mér...

í Skóli fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þegar ég var að velja hvaða samræmdu próf ég ætlaði að taka þá hugsaði ég einmitt svona, “ég tek bara öll prófin, þá hef ég allavega valmöguleika”. En ég mæli samt ekki með því að hugsa þannig (nema kannski þú vitir alls ekki á hvaða braut þú ætlar í framhaldsskóla) því ég var eiginlega búin að ákveða að fara á málabraut í framhaldsskóla, allavega ekki félagsfræði, samt tók ég samfélagsfræðiprófið og það gerði ekkert nema taka frá mér dýrmætan tíma sem hefði getað farið í betri undirbúning...

Re: Hvaða skóla?

í Skóli fyrir 20 árum, 7 mánuðum
MR… Nýnemi :)

Re: Gitar

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Held ég viti hvað þú ert að tala um, hefur líka gerst fyrir mig. Hef sennilega bara hreyft hendina eitthvað vitlaust, fæ bara svona geðveikan verk í hendina… Mjög óþægilegt og skrítið…

Re: Einhver annar??

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég veit um tilfelli þar sem mamman er ca 15 árum eldri en pabbinn. En það endaði líka á framhjáhaldi karlsins…:/ En mér finnst nú allt í lagi þó það muni örfáum árum…

Re: Spurning

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þegar umræða er orðin meira en vikugömul þá fer hún af heita listanum (ef hún var á honum).

Re: Hlerinn í Lost

í Spenna / Drama fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Við verðum bara að bíða og sjá :/

Re: Skóladagurinn

í Skóli fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er nú bara lengst til hálf 3 :P Er í menntaskóla núna, en í 10. bekk var ég lengst til hálf 5!

Re: Mizzeeh býr í Fellunum!

í Sorp fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Sama hér.

Re: Mizzeeh býr í Fellunum!

í Sorp fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það er notað sem skátaheimili núna. En það er víst ekkert svo lítið þegar maður kemur inn í það, eða það segja skátarnir allavega!

Re: Getiði gefið nýjum menntaskólakennara ráð?

í Skóli fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mér finnst langskemmtilegast hjá kennurum sem eru áhugasamir um það sem þeir kenna og finnst gaman að kenna það! Ef þeir eru hressir í tímum þá hressist ég og læri meira :) Fátt er hins vegar leiðinlegra en kennsla hjá lötum kennurum með drafandi rödd þannig maður nær engu sem þeir segja. Er með allavega tvo þannig kennara og þarf að berjast við að halda augunum á mér opnum í tímunum hjá þeim.

Re: verð á Magic :@

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
125 kr. í Bónus…

Re: dvd spilarar

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það eru sumir dvd diskar á svæði 1 sem virka í spilurum fyrir svæði 2, eins og One tree hill og Friends, það virkar hjá mér í svæðis 2 spilaranum.

Re: dvd spilarar

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Langflestir nýjir spilarar eiga að spila bæði svæði 1 og 2. Systir minnar spilari (Sony) spilar reyndar bara 2, en hún fékk hann líka fyrir 5 árum.

Re: Ohh Fuck

í Skóli fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hehe, greyið þú, ég ætla sko að mæta í kvöld, langar ekkert að vera ofurbusi :P

Re: Hvaða samræmdaprófi ætti ég að sleppa?

í Skóli fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Það er engin almenn braut í MR. Bara mála- og náttúrufræðibrautir. En þú átt ekki að þurfa að taka samfélagsfræðiprófið fyrir MR því það er engin félagsfr.braut.

Re: Samræmd próf á skólavefinn?

í Skóli fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Nú jæja… þá get ég lítið hjálpað þér.

Re: Tónlistafólk

í Hugi fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ef þú ert að leita að einhverju auðveldu myndi ég bara velja gítarinn. Ég keypti mér klassískan gítar fyrir 1-2 árum og kenndi bara sjálfri mér á hann, keypti nokkrar gítarbækur en svo var þetta líka frekar auðvelt fyrir mig því ég hef verið í tónfræði í 10 ár og kann því að lesa nótur. Kannski erfiðara fyrir byrjendur, sérstaklega ef þú byrjar svona seint. En þetta er ábyggilega eitt ódýrasta hljóðfærið og líka skemmtilegt…

Re: Samræmd próf á skólavefinn?

í Skóli fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þau eru komin á námsmatið… http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/1005.html

Re: That's just mean

í Tilveran fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég mæti alltaf 8.10 og er lengst til 14.30 (þrisvar í viku), einu sinni til 13.45 og á föstudögum bara til 13.00 :) Líst (lýst?) bara vel á það, væri reyndar alveg til í að byrja aðeins seinna td. á mán eins og í fyrra… En ég er allavega ekki í neinum eyðum eða neitt. Finnst samt frekar asnalegt að við fáum bara eina pásu, klukkan 11 og bara í hálftíma. Greyið þeir sem eru til 4 í skólanum.

Re: Skóli á íslandi er ekki ókeypis!

í Tilveran fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Á hvaða braut ertu? Ég er búin að eyða um 30 þúsund í bækur, ætla ekki að kaupa mér þetta rándýra strætókort (er sennilega að fara að flytja í bæinn þannig það tekur því ekki), skólinn kostaði varla neitt fannst mér og ég nota bara sömu tösku og í fyrra (kaupi kannski nýja þegar ég fer út í haust). Þannig þetta var ekkert svo dýrt hjá mér, nema jú bækurnar. Vinkona mín í Kvennó þurfti ekki að kaupa nema um helmingi færri bækur en ég!

Re: Linsur

í Hugi fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég fór í Augað í Kringlunni og fékk held ég fría “kynningu” á linsunum (fylgdi líklega með linsupakkanum), tók bara smá stund, hún sýndi mér hvernig átti að láta þær í og taka úr. Kom svo aftur viku seinna til að sjá hvernig þetta gengi.

Re: Haha

í Tilveran fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Köngulóm! Hata þessi andskotans kvikindi, skríðandi út um allt hérna í húsinu, fann eina í ísskápnum áðan!! Reyndar bara pínulítil og ég var nú ekki hrædd við hana, samt frekar ógeðslegt. Er líka nokkurn vegin með fóbíu fyrir hryllingsmyndum (þoli þær bara ekki!) og sprautum.

Re: að splundra bekkjum

í Skóli fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Sama í gamla skólanum mínum, 9. bekk var splundrað. Öllum fannst það ömurlegt en það þurfti að gera þetta vegna þess að þá áttum við að velja okkur braut og valfög og bekkirnir fóru eftir því… En fyrst átti að splundra okkur í 7. eða 8. bekk en því var frestað líklega vegna mótmælanna okkar.

Re: Framhaldsskólar

í Skóli fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Bíddu hvað varð um Kvennó?? Hvað er í gangi :S

Re: Nokkrar skemmtilegar mynningar.

í Skóli fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hehe skondið :P Ég man þegar ég var í skólaselinu í 1. eða 2. bekk, þá var ég held ég eftir hádegi í skólanum og í skólaselinu þá um morguninn. Svo spurði kennarinn hjá hvaða kennara ég væri til að athuga hvenær ég ætti að mæta í fyrsta tímann og ég sagði nafnið á kennaranum mínum en það eru tveir kennarar sem heita því nafni, nema með sitthvort eftirnafn, og hún gáði á vitlausa stundatöflu, ekki hjá mínum kennara, og ég einhverra hluta vegna þorði ekki að leiðrétta hana :S Þannig hún hélt...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok