Getur ekki verið gott.. En þetta minnti mig á þegar einn drengur braut á sér tánna með því að stappa of fast í gólfið, veit ekki hvað hann var að pæla… En maður gat eiginlega ekki stillt sig um að hlægja að því :P
Hata styttingar á ‘gestabók’! Eins og gesbó, eða hvernig sem þessar 10 ára fólk.is gelgjur skrifa þetta. En svo má bæta við ömó, kæró, Tónó, Listó, menntó og allar framhaldsskólastyttingarnar, emó, fóbó, spennó… Dettur ekki fleira í hug.
Nei hún rústaðist útaf því að gamli umsjónarkennarinn minn, sem var einn af tveimur kennurum sem sáu um þetta vinabæjardæmi, var vísað frá störfum þegar ég var að fara í 10. bekk. Vorum þá búin að fá Dani í heimsókn til okkar, og planið var að endurgjalda heimsóknina. Mhm ég læt mig dreyma um kúlusúkkspáskaegg :) Hvernig kúlusúkk er þetta annars? Sambó, Góu eða e-ð annað ? :P
Páskaegg úr kúlusúkki?? Aahh minn vill! En já við fórum líka bara í örfáar ferðir, Úlfljótsvatn, Þórsmörk og svo bara útskriftarferðin norður á land, held það hafi ekki verið neitt annað. Árgangurinn á undan okkur fór til DK í 8. eða 9. bekk og margir aðrir á undan líka held ég, okkur langaði geðveikt til DK, það var fyrirhuguð ferð bara fyrir minn bekk og einn annan, vinabæjardæmi, en svo fór það úrskeiðis :(
Man eftir því þegar ég þurfti að taka þetta í fyrra, þetta var svo langt og leiðinlegt… En samt ágætt að vera búin í skólanum um hádegið, en svo var rúmur helmingur bekkjarins sem tók þetta þannig það voru svo fáir í tímum þannig þau fengu bara frí… En undir lokin þá nennti ég varla að lesa spurningarnar og krossaði bara við eitthvað…
Hey ég var líka hjá Helga, en fékk teinana bara eftir að ég fór til nýs tannréttingarlæknis til að vera ekki að byrja þetta vesen hjá Helga og skipta svo um lækni. Held ég hafi fyrst verið hjá Pétri einhverjum, svo hætti hann og ég fór til Helga, þá hætti hann líka og nú er ég hjá Gísla. Spurning hvernær Gísli mun hætta… En þá verð ég vonandi búin með þetta vesen :)
Je parle francais :P Franska eiginlega skásta fagið mitt, sakna þess að vera ekki í verklegum greinum lengur :( En raungreinarnar eru allavega í minnstu uppáhaldi, er heldur ekkert allt of góð að mér í sögu… Þess vegna valdi ég mér málabraut :)
Slepptu því að segja henni það, hún mun örugglega ekki taka eftir því að styttan hennar er horfin, allavega ekki strax, svo ef hún allt í einu fattar að hún er horfin þá færi hún varla að gruna þig ;) Eða þú getur verið hreinskilinn og vonast eftir góðum viðbrögðum frá henni.
Get ekki valið eina besta, en ein sú versta sem ég hef séð er What a girl wants, aðalleikkonan er hryllileg í henni. Var að muna eftir einhverri annarri hræðilegri mynd um daginn en búin að gleyma henni…
Tjah, bjó í 16 og hálft ár í Mosfellsbænum ef það telst með :) Svo hefur öll familían nema ég og ein systir mín búið í Danmörku, en ég stefni að því að búa þar einhvern tíma í framtíðinni :P
Oj vondi snjór :( Fór út í þynnstu skónum mínum í gær sem eru eiginlega líkari sokkum en skóm og þegar ég fór heim í morgun þurfti ég að labba í slabbi og rennblotna í gegn og frjósa :( Ekki gaman… Fannst samt frekar skrítið að ég leit út um gluggann í gær, þá var bara venjulegt veður, enginn snjór, svo horfði ég á mynd í svona klukkutíma, leit svo aftur út um gluggann og þá var allt hvítt.
Noh ég hélt ég væri sú eina sem hafði verið svona lengi með teina, ég fékk mína í apríl í 6. bekk og losnaði ekki við þá fyrr en í nóvember á 1. ári í menntaskóla! I feel your pain… bara ömó að vera með þetta allan gaggó, var reyndar eiginlega búin að sætta mig við að hafa þá á fermingunni en samt voru allir að vorkenna mér útaf því… ljósmyndarinn minn vildi varla leyfa mér að brosa venjulega svo að teinarnir myndu ekki sjást! Og mér fannst það koma frekar illa út á myndunum, hálfopinn...
Bara fyrir stuttu klæjaði mig alltaf mjög mikið á kvöldin, aðallega á fótleggjunum og stundum handleggjunum, mjög pirrandi, gat stundum ekki sofnað útaf því. En svo fór þetta að minnka og nú klæjar mig voðalega sjaldan :P Fer í sturtu á hverjum degi en var samt farin að halda að þetta var bara útaf því að það var svo “langt” síðan ég fór í sturtu, fór alltaf á morgnanna en klæjaði á kvöldin…
Ég missti einmitt af honum, var í Danmörku. En það kom frétt um hann í danska sjónvarpinu… Fannst geggjað skrítið að heyra íslensku í dönsku sjónvarpi :P
Ég er rétt hjá Skeifunni en fann ekki neitt, kannski af því ég var inní eldhúsi að baka og gat ekki hugsað um neitt annað akkúrat þá :P En þegar ég hugsa um það þá er geðveikt langt síðan ég fann fyrir jarðskjálfta… Síðasti sem ég man eftir var í ca 4. bekk í barnaskóla :S
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..