Já, þú last rétt. Ég braut svona ‘mini’ listaverk heima hjá mér =/ Þetta var svona lítill kall, sem mamma mín hélt mikið uppá. Ég veit ekki hvað ég var að asnast. Hann er staðsettur uppí stofu, og ég var að ryksuga [Pain] og rak slönguna í hann, og sá hann vagga þarna til á gluggakistunni.

Ég hefði alveg getað studd við hann, en af einhverjum ástæðum gerði ég það ekki =/

Ooog ég er ekki enn búinn að segja mömmu frá þessu.

Hehe, þori því ekki, ég meina, ég braut uppáhalds styttuna hennar. Ég hefði átt að passa mig betur.

-Nöldu
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið