Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Uppáhalds Friends Þáttur

í Gamanþættir fyrir 20 árum
Hahaha það er svo geðveikt atriði… Weeeneeer [með skrækri röddu] ég man bara eftir að ég lá í hláturskasti yfir þessu :D Annars get ég eiginlega ekki valið uppáhaldsþátt, frekar uppáhaldsatriði, og það er meðal annars Weener atriðið og líka þegar Ross og Rachel eru í þvottahúsinu (Ross er geðveikt hrifinn af Rachel) og Ross rekur sig í lokið á einni þvottavélinni og flýgur á gólfið! Það er einhversstaðar í 1.-3. seríu, geðveikt langt síðan ég sá hann…

Re: Verstu og bestu pizzurnar?

í Tilveran fyrir 20 árum
Bestu: Devitos, Dominos, Pizza Hut, Pizzabær Verstu: Pizza 67, allavega sú sem ég fékk fyrir nokkuð mörgum árum, hún var vond og ég hef ekki keypt mér þar pizzu síðan þá.

Re: Beauty and the Geek

í Tilveran fyrir 20 árum
Já þau taka þetta frekar alvarlega, en þetta er bara svo asnalegt. Láta “nörda” og “beauties” kenna hvoru öðru, svo eru þau alltaf að hneykslast á hvoru örðu og svona. Bara frekar asnalegt, samt gat maður alveg hlegið að þessu.

Re: Beauty and the Geek

í Tilveran fyrir 20 árum
Horfði á þetta í nótt, hafði ekkert betra að gera, og þetta er eitt það asnalegasta sem hefur verið búið til fyrir sjónvarpið.

Re: Gettu betur

í Tilveran fyrir 20 árum
Til hamingju, þið áttuð þetta svo sannarlega skilið :)

Re: Strákar, eigiði jakkaföt ?

í Tilveran fyrir 20 árum
Ekki á ég kjól. Væri samt alveg til að eiga nokkra ákveðna. Legg það bara ekki í vana minn að eyða þúsundum í kjóla sem ég nota bara einu sinni.

Re: Nöldur dagsins

í Tilveran fyrir 20 árum
Fór reyndar í bæinn ef ég man rétt, en skil að það hlýtur að vera ömurlegt að láta próf eyðileggja fyrir sér helgarferð heim.

Re: páskaegg

í Tilveran fyrir 20 árum
Ok, svo augu mín voru ekki að ljúga að mér :P

Re: Nöldur dagsins

í Tilveran fyrir 20 árum
Ég tók eitt jólaprófið á laugardegi… Það var samt ekkert svo slæmt, enda um morguninn þannig maður hafði samt allan daginn eftir.

Re: Samræmdu

í Tilveran fyrir 20 árum
Tók öll en sé svoldið eftir því. Hefði bara þurft að taka 4.

Re: páskaegg

í Tilveran fyrir 20 árum
Ég fæ Nóa eins og alltaf en veit svosem ekki númer hvað, 4 myndi alveg duga mér, enda nýbúin að borða páskaegg sem gleymdist í fyrra.

Re: páskaegg

í Tilveran fyrir 20 árum
Ég er nokkuð viss um að ég hafi séð egg frá Kólus í Kolaportinu síðustu helgi…

Re: Páskafrí í næstu viku

í Tilveran fyrir 20 árum
Slaka á, kannski skreppa í bústað, borða yfir mig, sofa, á ekki eftir að nenna að byrja að læra. Djöfull hlakkar maður til.

Re: Aprílgabbið á rúv.

í Tilveran fyrir 20 árum
Haha það var snilld… Fyrsta RÚV-aprílgabbið sem ég man eftir.

Re: Apríl gabb.

í Tilveran fyrir 20 árum
Ég lét gabbast af Silvíu Nætur dæminu… En ekkert annað svo ég viti.

Re: hverjir hafa?

í Tilveran fyrir 20 árum
Fjöldi atkvæða: 1913 Ennþá að bætast við. En ég tók þátt, er eitt af þessum 4 prósentum :P

Re: Auglýsing

í Tilveran fyrir 20 árum
Hahaha snilld :P

Re: Slæm meðferð á börnum!

í Tilveran fyrir 20 árum
Jesús… Það er eitthvað svo rangt við þetta, þennan dans… Ég myndi nú ekki senda 7 ára barnið mitt í sjónvarpið þó það væri með svona hæfileika, jújú þetta var voðalega sætt og ég gat hlegið að þessu, en þegar ég hugsa betur um það þá finnst mér þetta svoldið sjúkt. En ég trúi því nú varla að hann verði lagður í einelti útaf þessu, það á bara eftir að vera hlegið góðlátlega yfir þessu í framtíðinni. Eins og hann Þorvaldur Davíð sem rappaði Skólarapp og “sló í gegn” seinna í Verslóleikritunum…

Re: Hvaða lost persóna ert þú?

í Spenna / Drama fyrir 20 árum
Neh efast um að þetta sé 100% sannleikur :)

Re: Hvaða lost persóna ert þú?

í Spenna / Drama fyrir 20 árum
Sama hér, mest lík Sun. Passar held ég ágætlega við mig, allavega miðað við hina karakterana :P En 19% hugrekki… tss ég er ekki alveg svona mikil veimiltíta :P You scored 83% kindness, 19% courage, 23% seedy past, and 64% secretiveness!

Re: Róóóleg..:S

í Tilveran fyrir 20 árum
Haha nákvæmlega! Hata líka þegar mamma eða einhver kemur þegar ég er að horfa á góðan þátt og setur út á þáttinn og spyr hvort það sé ekki eitthvað annað í sjónvarpinu. come on, ég horfi á þennan þátt afþví mér finnst hann góður.

Re: Róóóleg..:S

í Tilveran fyrir 20 árum
Haha hef ekki lent í því en mér finnst samt frekar böggandi oftast þegar mamma sest hjá mér þegar ég er að horfa á einhvern þátt og hún fer að spurja mig spurninga eins og “bíddu eignuðust þau barn?”, “ha, eru þau saman?” og svoleiðis. Þá hefur hún alltaf horft á einn og einn þátt og nær því aldrei söguþráðinum :/ Og ég vil helst ekki missa af þættinum því ég þarf að útskýra allt.

Re: Trúarjátningin

í Tilveran fyrir 20 árum
Enginn er guð nema Allah og Múhameð er sendiboði hans. Þetta er eina trúarjátningin sem ég kann… Gat aldrei lært þessa kristnu á fermingartímanum.

Re: hvað borða hugar?

í Tilveran fyrir 20 árum
Svaf yfir mig í morgun þannig ég náði ekki að fá mér neitt en fæ mér annars alltaf Cheerios og fjörmjólk. Mig er samt farið að langa í coca puffs og cheerios blandað saman… elskaði það fyrir nokkrum árum :P

Re: á kvöldinn hvað fynst ykkur gott að narta í áður en þið farið uppí rúm =)

í Tilveran fyrir 20 árum
Ég veit það vel, hann mældi bara ekki með neinum mat seint á kvöldin, ef ég nauðsynlega þyrfti að borða, þá bara einn ávöxt eða álíka.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok