Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Greenkeeping - Elmwood - Skotland (6 álit)

í Golf fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Í Skotlandi, nánar tiltekið í Cupar er skóli sem heitir Elmwood og er hann einn sá bezti á sínu sviði. Sviðið er Greenkeeping eða grasvallafræði. Nú, ég er að fara í þennan skóla núna í haust og ef einhver hérna inna huga hefur verið þarna, er að fara þangað, langar að fara o.s.frv. væri frábært að sá hin sami setti sig í samband við mig bara til að ræða málin. Ég veit í rauninni voða lítið hvað ég er að fara útí. Hef bara unun af því að vera úti í fallegu umhverfi við vinnu í stað þess að...

Mikið magn í framköllun (3 álit)

í Ljósmyndun fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sælir ljósmyndarar. Ég var að taka til heima hjá mér um daginn og fann poka sem ég var búinn að gleyma að væri til í nokkur ár. Þessi poki inniheldur svona á bilinu 25-35 filmur 24 og 36 mynda. Að framkalla þetta allt saman kostar sitt jafnvel í krapp framköllun eins og hjá Bónus eða Hagkaup. Get ég óskað eftir tilboði hjá framköllunarstofum eða á ég bara að láta Bónus duga? Komið með tillögur ljósmyndarar.

Trommarar ATHUGIÐ (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er að auglýsa eftir Hi-Hat statífi, statífi fyrir sneril og stóli. Má vera notað og gamalt úrsérgengið og bilað, aðalatriðið er að dæmið kosti ekki jafnmikið/meira en nýtt. Venlig Hilsen

Áhugaleikarar óskast (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég er að leita að nokkrum áhugaleikurum á aldrinum 20-25 fyrir hlutverk í stuttmynd sem ég er að fara að gera sem lokaverkefni úr Margmiðlunarskólanum í Reykjavík. Um er að ræða tvær til þrjár stelpur og fjóra stráka. Myndin verður tekin upp í Mars-Apríl og fjallar stuttlega um hressan hóp sem heldur út á land og lendir í ævintýrum. (Myndin verður þó stotin í nágrenni Reykjavíkur) Nánari lýsing gefin í pósti. Þar sem þetta er útskrifarverkefni verður fagmannlega staðið að hlutunum, en því...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok