Í Skotlandi, nánar tiltekið í Cupar er skóli sem heitir Elmwood og er hann einn sá bezti á sínu sviði. Sviðið er Greenkeeping eða grasvallafræði.
Nú, ég er að fara í þennan skóla núna í haust og ef einhver hérna inna huga hefur verið þarna, er að fara þangað, langar að fara o.s.frv. væri frábært að sá hin sami setti sig í samband við mig bara til að ræða málin.
Ég veit í rauninni voða lítið hvað ég er að fara útí. Hef bara unun af því að vera úti í fallegu umhverfi við vinnu í stað þess að sitja inni heilu sumurin svo ég tali nú ekki um blessað golfið

Þeir sem vita hvað ég er að tala um hafið samband