Sælir ljósmyndarar.
Ég var að taka til heima hjá mér um daginn og fann poka sem ég var búinn að gleyma að væri til í nokkur ár.
Þessi poki inniheldur svona á bilinu 25-35 filmur 24 og 36 mynda.
Að framkalla þetta allt saman kostar sitt jafnvel í krapp framköllun eins og hjá Bónus eða Hagkaup.
Get ég óskað eftir tilboði hjá framköllunarstofum eða á ég bara að láta Bónus duga?
Komið með tillögur ljósmyndarar.