Jón Arnar Magnússon keppir á Meistaramóti Íslands í frjálsum í fjölþrautum sem fram fer í Baldurshaga (undir stúku Laugardalsvallar), í Laugardalshöll og Íþróttahúsinu í Grafarvogi núna á föstudag og laugardag. Hann á Íslandsmetið í sjöþraut innanhúss (6293 stig fra 1998) Gaman verður að sjá hvernig staðan er á Jóni Arnari núna - vonandi tekst honum að nálgast íslandsmet sitt þegar líður á veturinn. Vilborg Jóhannsdóttir UMSS keppir líka í mótinu, hún er Íslandsmethafi í sexþraut kvenna...