Hmmm… besta kennslan er að fylgjast með fagmanni leggja flísar. Næstbest er að verða sér út um bækur sem sýna hvernig á að bera sig að. Svo er náttúrulega internetið. T.d. fara á google og leita að “how to lay tiles” þá koma nokkrar síður upp. Ef um lítinn flöt er að ræða þá er ok að prófa sig áfram. En það að vera með tilraunastarfsemi á stórum fleti án þess að hafa einhverja hugmynd flísalögn getur leitt af sér dýr mistök. Ég mæli því með að lesa sér aðeins til.