Er þetta ekki fyrir norðan, í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpuvík. Þeir héldu allavegana tónleika þar í sumar. Þekki nokkra sem fóru á þetta og lýstu þessu sem ólýsanlegu heh.
Jú það er eitt sem mér finnst slæmt við myndina og það frekar áberandi. Það eru systkini Páls, mér finnst þau hræðilega illa leikin og finnst eiginlega bara pirrandi þegar senur einsog “Palli, segðu mér sögu” koma og “Palli, Þú ert brjálaður!” með eins lítilli sannfæringu og um getur. Annars ekki meira sem ég man eftir í augnablikinu..
Loksins loksins segi ég bara. Ég er búinn að bíða eftir þessari grein síðan ég byrjaði að skoða huga. Mjög flott grein og skemmtileg lesning einsog aðrir segja um eina af mínum uppáhalds. Endilega koma með fleiri!
Ég er ánægður að margir eru að senda inn myndir af söfnunum sínum. Gaman að sjá hvað aðrir eiga. Ég á um 120 en ég á enga myndavél til að sýna ykkur en væri til í það..
Loksins kemur eitthver almennilegur playlisti hérna, eða mörg lögin þarna eru afar góð. Ég er alveg sammála þessum hérna fyrir ofan, kynntu þér Leaves. The Angela Test finnst mér ekki síðri diskur með þeim.
Geðveikur diskur! Vissuð þið að ástæðan fyrir nafninu á plötunni, Funeral, er vegna þess að á meðan upptökum stóð á plötunni létust 9 manns sem á eitthvern hátt þekktu hljómsveitarmeðlimi, foreldrar, frændfólk og þess háttar.
Ég er hjartanlega sammála Vikkia. Mér finnst þeir vera með ansi góðann hóp og líklegir til alls. Lið sem vinnur Juventus og Real Madrid og naumlega tapa fyrir Barcelona hlýtur nú að kallast gott lið vinur minn. Mér hlakkar til að sjá hvað þeir gera á nýju tímabili á nýjum velli. Kv. Arsenal fan.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..