Þetta lítur svosem ágætlega út, en ég get samt ekki annað en tengt þetta við 1984, skáldsögu George Orwell, og þá fæ ég hroll… Bókin fjallar um heim þar sem ríkir einræðisstjórn sem fylgist með öllum gjörðum manna, en eitt af því sem sú stjórn gerir er að reka ráðuneyti sem gerir ekki annað en að einfalda tungumálið. Markmiðið er að koma í veg fyrir það að menn geti mótmælt eða gert uppreisn. Pælingin er sú, að án fjölbreytilegs tungumáls, þá geti fólk ekki tjáð sig og ekki tekið sig saman....