þetta venst, ég er á öðru ári í MR núna og mamma og pabbi gera sér bara grein fyrir því að ég ber sjálf ábyrgð á mínu námi og eitthvað.. þau fengu sjokk þegar ég kláraði haustmisserið í fyrra, hafði öll mín 9 ár í grunnskóla verið með 9 og 10 í öllu og fór svo niður í bara svona semi einkunnir, fyrst voru þau alveg tjúll og svo bara einhvernvegin urðu þau skilningsrík og mamma kippti sér ekkert upp við einkunnirnar í dag..
ég var með hliðartopp í nokkur ár og fannst það þægilegt og svona en ákvað að breyta til og fékk mér þvertopp, það tók nokkrar tilraunir að ná honum réttum en hárgreiðslukonan mín var alltaf að prófa eitthvað nýtt, virkar best fyrir mig að hafa hann svona rúnnaðann við endana… held þú sért rosalega sæt með þvertopp
ég á extra long buxur úr topshop, reyndar keyptar óvart í topshop í london þar sem ég þarf eiginlega extra short buxur. prófaðu topshop, jafnvel líka að það sé hægt að sérpanta handa þér eða eitthvað þar? ég veit það ekki
sko, þá er batteríið mjög líklega bara farið þetta eru hleðslubatterí og þau geymast víst ekkert voðalega vel ef það er ekki verið að nota þau myndavélin mín einmitt virkar ekki útaf því að ég geymdi hana ofaní skúffu í langan tíma, batteríin leka víst eitthvað
ég ætla að segja þarna búðin í hafnarfirðinum ég keypti mér 2 góð nærfatasett þar og slatta af nærbuxum fyrir 6 þús kall. hún er á “göngugötunni” og heitir jb búðin eða eitthvað
minn draumaprins andlega: skemmtilegur, umhyggjusamur, fyndinn, góður, blíður, listrænn, uppátækjasamur, tilbúinn að hlusta og svo framvegis líkamlega: hávaxinn, dökkhærður, grannur, sæt/töff föt, dökk augu og bara eitthvað svona
clinique besti maskarinn er þessi dökkgræni með glimmerinu í klessist ekki, lengir og þykkir og er allavegana uppáhalds maskarinn minn, hef ekki notað neinn annan síðan í febrúar eða eitthvað
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..