Veit einhver um búðir sem selja extra síðar buxur?
Ég er kvenkyns með innanfótarsaum hátt í einn meter og finn nær hvergi buxur á mig. Svo er ég líka með frekar breiðar mjaðmir þó þær séu í hlutfalli við hæðina.

Next buxur merktar Long hafa sumar gengið fyrir mig þótt þær séu flestar í það stysta. Ég hef notað þar 12-14 Long, 42-44 í Zöru.

Einhverjar hugmyndir? Ég er að verða geðveik á að leita og eiginlega hætt að leita mér að buxum.
"