Vááá! Fékk mitt tattoo 2007 og það kostaði 7000 ef ég man rétt o.O Borgaði bara startgjaldið því það er svo lítið og symple .. o.O Ekkert smá sem þetta hefur hækkað!!!
Haha tek undir það … er í 5 sæti á listanum … undir gamla nafninu það er … og það eru tjahh … 4 ár að verða … síðan ég hætti að stunda þetta x) Svo … anything happened in the past 4 years?
Skal allveg trúa því að þetta hafi verið vont :) ég er með g-lykil þar sem efstu táknin eru … fann lítið fyrir efri partinum af því en var farið að versna frekar mikið eftir því sem neðar dróg hehe
Á þessa upp í hillu þar sem hún bíður eftir að vera lesin … annars las ég comic bókina fyrst og fannst hún frábær svo ákvað að kaupa þessa og lesa seinna :)
Ég keyrði suður fyrir mitt tattoo og fór til Sverris :) er bara alltof stór ákvörðun að fá sér tattoo til að taka áhættu á að það mistakist … svo mæli með því að skreppa suður :)
Mjög góð grein :) langt síðan ég hef litið hingað inn og gaman að lenda á góðri grein að dunda sér við :) En já … verð að segja að ég er sammála þér í flestu … Ég var mun meira svekkt yfir því hvað tók við eftir árás Draco á Harry í lestinni. Mér þótti mikilvægt fyrir samband Tonks og Lupin að hún kæmi og bjargaði honum til þess eins að koma á framfæri að Verndari (e. Patronus) hennar hefði breyst skyndilega í varúlf, þ.e. Lupin. Ég var URLANDI þegar ég kom út úr bíó … opið hugarfar og allt...
Þetta eru fyrstu kosningarnar mínar og ég er ekki allveg viss. Ég styð vinstri græna en ég kýs ekki án þess að kynna mér alla flokkana :) Vonandi að kosningunum verði ekki flýtt meira en 9. maí … mér er sama hvað Hörður Torfa segir, það sem við þurfum núna er svigrúm til að átta okkur á hlutunum og fyrir nýja flokka að mynsast
Ég berst fyrir því að systir mín sem ég hef hálfpartin alið upp eigi sér framtíð og ég geri það með því að kenna henni að bera virðingu fyrir fólkinu í kringum sig. Ekki með því að gefa henni ofbeldi með móðurmjólkinni.
En hvað með lögreglumanninn sem liggur alvarlega slasaður eftir að hafa verið grýttur með gangstéttarhellu ? Skiptir hann engu máli því hann vinnur fyrir ríkið ?
Ég hef bara áhyggjur af því hvort einhver þurfi að deyja, þingmaður, bankamaður, mótmælandi, lögreglumaður eða annar, til þess að ríkisstjórnin átti sig
Ég er jafn þreytt á því og restin að ekki sé á mig hlustað :( en það virkilega stingur í hjartað að lesa frétt eftir frétt um að ástandið sé orðið svona. Vissulega er það að mestu leiti alþingismönnunum að kenna, þeir hefðu átt að hlusta fyrri löngu. En inn á milli sér maður og heyrir af fólki sem þrífst á því einu að vera með, búa til vandamál, picka fight. Fólki sem gerir þetta ekki af réttum ástæðum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..