Varðandi hvort að saga sé góð eða ekki, þá fer það að mestu leiti (leyti?) eftir því hvernig þú útfærir hana á blaði. Nú er ég enginn svaka myndasöguspekúlant en í mínum tilraunum þá hef ég komist að því að þú getur verið með frekar góða hugmynd og klúðrað henni algjörlega með lélegri útfærslu, og svo öfugt, enga svaka hugmynd og bjargað henni fyrir horn með góðri útfærslu… Best að taka það fram að það sem ég á við með útfærslu er framsetningin á sögunni. Bottmlæn: Ég get varla svarað þér...