Hrotti glottir við tönn er hann sér hversu hrædd stelpan er við hann. Enda ekki furða, hann hefur lifað af mun fleiri bardaga í hringnum en hún. Hann fikrar sig í áttina að henni. ,,Svona, stelpa mín, vertu ekki hrædd. Komdu til pabba!" Hann hinkrar við eitt augnablik og fylgist með viðbrögðum hennar. Hrotti færir sig uns hann stendur 25' frá Rachel.