Ef þú ferð í Soho þá eru þar margar skemmtilegar litlar búðir sem selja t.d. vínylplötur, geisladiska og DVD myndir. Þú gætir samt þurft að leita að þessu en allavegana þar sem ég fór þá var ein gata þar sem voru ábyggilega næstum því 10 þannig verslanir.
Já, það eru vanalega bestu hryllingsmyndirnar sem eru þannig. Ég ætla allavegana að hugsa málið, btw. þá var ég að spá í að skipta henni í American History X.
Það er ekkert að því að VERA í raun og veru trúleysingi og vera búinn að móta sér alvöru skoðun á því án þess að vera frá áhrifum þrýstings frá öðrum. Hinsvegar er voða hallærislegt eins og var sagt hérna að monta sig yfir öllum fermingargjöfunum sem maður fékk og segjast svo vera trúleysingi. Svo skil ég ekki alveg afhverju allir þeir sem eru(?) trúleysingjar þurfa alltaf að vera að auglýsa það svona mikið. Ég er samt enginn svaka trúmaður og viðurkenni það fúslega að ástæðan fyrir því að...
Mér finnst þessi “tíska” nútildags að vera “trúleysingi” ferlega hallærisleg. Flestir þeir sem segja það eru ábyggilega einhverjir nýfermdir krakkar sem halda að þau séu voðalega töff og sjálfsstæð með því að segja þetta en eru í raun og veru bara að gera það til þess að fylgja hópnum.
Ég geri það heldur alls ekki, það er bara staðreynd að gömlu svörtu blúsararnir eru MIKLU betri heldur en þessir semi-gömlu hvítu rokkarar. Ég viðurkenni að það sem ég skrifaði upprunalega var ruglandi.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..